Skrifstofa KÍ lokuð milli jóla og nýárs

Skrifstofa Kennarasambandsins verður lokuð frá og með 23. desember 2022 til mánudagsins 2. janúar 2023. Þann dag opnar klukkan 10 að vanda. Hægt verður að hafa samband við Orlofssjóð í gegnum tölvupóst yfir hátíðarnar.
Félagsmenn, sem dvelja í sumarhúsum og íbúðum Orlofssjóðs um hátíðarnar, eru beðnir að hafa samband við umsjónarmenn á hverjum stað ef eitthvað kemur upp á. Upplýsingar um umsjónarmenn er að finna í leigusamning.
Þurfi félagsmaður nauðsynlega að ná í starfsfólk Orlofssjóðs eða koma skilaboðum til sjóðsins getur viðkomandi sent tölvupóst á netfangið orlof@ki.is.
Allar upplýsingar um reglur sjóðsins má finna hér.
Starfsfólk Orlofssjóðs mun lesa tölvupósta sem hér segir:
27. desember
milli klukkan 11 og 12
28. desember
milli klukkan 11 og 12
29. desember
milli klukkan 11 og 12
30. desember
milli klukkan 11 og 12
Gleðilega hátíð!