Skref í rétta átt

Fréttir|18. febrúar 2026
La Rel Easter Kucglbxjh O Unsplash

Nýsamþykktar tillögur Reykjavíkurborgar eru skref í rétta átt að mati stjórnar og samninganefndar Félags leikskólakennara. Ályktun þessa efnis var send út fyrr í dag.

Leikskólinn er í öllum skilningi menntastofnun fyrir börn. Hann er samkvæmt lögum fyrsta skólastigið. Hans eina lagalega hlutverk felst í því að tryggja börnum gæðamenntun, uppeldi og umönnun með hliðsjón af aldri þeirra og þroska."

Þetta er meðal þess sem fram í nýrri ályktun sem stjórn og samninganefnd Félags leikskólakennara (FL) hefur sent frá sér. Þar segir jafnframt að í grunninn miði tillögur Reykjavíkurborgar að því að búa til hvata sem geti leitt til styttri meðaldvalartíma barna í leikskólum. 

„Það er gott markmið í sjálfu sér og getur einnig reynst mikilvægt púsl í að bæta starfsaðstæður með auknum fyrirsjáanleika og betra jafnvægi milli mönnunar og dvalartíma barna. Það er bæði gott fyrir börn, kennara og annað starfsfólk leikskóla," segir jafnframt í ályktun FL. 

Ályktunin í heild hljóðar svo:

Stjórn og samninganefnd Félags leikskólakennara telur nýsamþykktar tillögur Reykjavíkurborgar í leikskólamálum skref í rétta átt.

Í grunninn miða tillögurnar að því að búa til hvata sem geti leitt til þess að meðaldvalartími barna í leikskólum styttist. Það er gott markmið í sjálfu sér og getur einnig reynst mikilvægt púsl í að bæta starfsaðstæður með auknum fyrirsjáanleika og betra jafnvægi milli mönnunar og dvalartíma barna. Það er bæði gott fyrir börn, kennara og annað starfsfólk leikskóla. Hvort hvatarnir eru nægilega sterkir mun koma í ljós og þarf þá að auka þá ef markmiðið næst ekki.

Stjórn og samninganefnd FL gefur lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga eins og VR og BSRB. Sú gagnrýni er ekki byggð á sérfræðiþekkingu á leikskólastiginu sem skólastigi eða hagsmunum barna, kennara og annars starfsfólks. Leikskólinn er í öllum skilningi menntastofnun fyrir börn. Hann er samkvæmt lögum fyrsta skólastigið. Hans eina lagalega hlutverk felst í því að tryggja börnum gæðamenntun, uppeldi og umönnun með hliðsjón af aldri þeirra og þroska.

Tillögur Reykjavíkurborgar munu ekki leysa allan vanda og flestir gera sér grein fyrir því. Áfram þarf að vinna markvisst að fjölgun kennara, sem er lykilatriði í að bæta gæði náms á leikskólastiginu. Fjölgun kennara er forsenda stöðugleika. Stjórn og samninganefnd Félags leikskólakennara mun áfram leggja sitt af mörkum í þeirri vinnu en sú vinna fer fram við kjarasamningsborðið þar sem raunverulega er hægt að ná árangri í að fjölga kennurum.

Nú er í fullum gangi vinna við virðismatsvegferðina sem getur leitt til þess að kennarar, sem eru sérfræðingar í fræðslustarfsemi, verði samkeppnishæfir í launum við sérfræðinga á almennum markaði. Það er sveitarfélaganna að nýta það tækifæri ef þeim er alvara með að gera það sem þarf til að fjölga kennurum.

Fyrir hönd stjórnar og samninganefndar Félags leikskólakennara,
Haraldur F. Gíslason, formaður FL