Skráning og innsending ágripa fyrir Menntakviku

Fyrir utan að vera uppspretta nýrra hugmynda og þekkingar er ráðstefnan vettvangur mikilvægrar umræðu ár hvert.
Menntakvika – rannsóknir, nýbreytni og þróun er árleg áðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og verður haldin 15. október í ár.
Þetta verður í 25. skipti sem Menntakvika er haldin, svo ráðstefnan á aldarfjórðungsafmæli. Menntakviku er ætlað að kynna og miðla því sem er efst á baugi í menntavísindum og á tengdum sviðum hverju sinni.
Í fyrra voru öll met slegin í fjölda innsendra ágripa og flutt voru rúmlega 300 erindi um fjölbreytt efni í fleiri en 80 málstofum. Ráðstefnan var í fyrsta skiptið alfarið rafræn og áheyrendur fleiri en nokkru sinni. Í ár stefnum við fullum fetum að því að halda ráðstefnuna í raunheimum og treystum því að nánast öll verði bólusett þegar komið er fram á haust.
Ætlunin er að streyma einnig beint frá öllum málstofum og felur skráning/innsending ágripa í sér samþykki á því. Málstofur verða ekki teknar upp.
Á dagskrá ráðstefnunnar verða sem áður bæði málstofur og veggspjaldasýningar, auk þess að mögulegt er að halda skipulagðar hringborðsumræður.
Eins og alltaf verður áhersla lögð á heildstæðar málstofur frá rannsóknarstofum eða -hópum
Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum, og tengdum sviðum, við Háskóla Íslands til þátttöku á ráðstefnunni, sem og öllu starfsfólki annarra stofnana sem rannsaka eða vinna með viðeigandi málefni.
Undirbúningur og framkvæmd Menntakviku er í höndum Menntavísindastofnunar.
Fyrir utan að vera uppspretta nýrra hugmynda og þekkingar er ráðstefnan vettvangur mikilvægrar umræðu ár hvert.
Skráning er hafin og skilafrestur ágripa er, eins og fyrr segir, til miðnættis 30. júní 2021.
Vinsamlegast fylgið þessum skilyrðum við skrif ágripa:
Hámarkslengd er 250 orð. Ágrip eiga ekki að innihalda heimildir.
Í ágripi skal:
Lýsa tilgangi rannsóknar
Taka fram hvaða aðferðarfræði er notuð við rannsóknina
Greina frá helstu niðurstöðum rannsóknar
Álykta út frá niðurstöðum
Vinsamlegast sendið inn ágrip hér.
Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis.
Sjá nánar á vef Menntakviku.