Skráning í nýstofnað fagfélag nýliða stendur yfir

Fréttir|12. desember 2024

Nýliðar í kennslu eru hvattir til að skrá sig í nýstofnað fagfélag.

Fagfélag nýliða í kennslu var stofnað formlega 7. október síðastliðinn. Stofnun félagsins er í samræmi við samþykkt frá 8. Þingi KÍ sem fór fram 2022. 

Skráning í félagið stendur yfir og hvetur Kennarasambandið alla nýja kennara til að skrá sig. 

Velið Félagsaðild – Fagfélag nýliða í kennslu sem málaflokk.

Rétt til aðildar eiga:

  • Félagsmenn KÍ, fyrstu fimm ár í starfi
  • Kennaranemar sem starfa við kennslu
  • Kennaranemar á síðasta ári í námi
  • Kennarar sem flytja sig á milli skólastiga fimm árin eftir skipti

Líkt og segir í samþykkt þingsins starfar félagið þvert á skólastig. Nýliðar geta tekið þátt í starfi félagsins síðasta árið í námi og fyrstu fimm ár kennslu. Það sama á við um kennaranema sem starfa við kennslu. Kennarar sem flytja sig milli skólastiga geta fengið aðild að félaginu. 

Félagið er sjálfstætt starfandi með formann sem er tengilliður félagsins við Kennarasambandið. Fræðslunefnd KÍ sér um reglubundna fræðslu fyrir félaga fyrir hönd sambandsins.

 

FRÉTT um stofnun félagsins