Skráning á skyldum leikskólastjóra á tímum COVID-19

Fréttir|26. nóvember 2021

Kristín Gísladóttir leikskólastjóri hefur skilað skýrslu vegna verkefnis sem Rannsóknasjóður KÍ styrkti á síðasta ári.

Kristín Gísladóttir, leikskólastjóri á Uglukletti í Borgarnesi, hlaut styrk fyrir rannsókn undir yfirskriftinni Skráning á skyldum leikskólastjóra á tímum COVID-19. „Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna reynslu leikskólastjóra í starfi í fyrstu bylgju Covid-19 á Íslandi sem var frá 13. mars til 4. maí. Athugað var hvernig þeim tókst sem leiðtogum að takast á við erfiða tíma og hvaða áherslur og aðferðir þeir nýttu til þess að komast í gegnum tímabilið og hvernig þeir sem einstaklingar tókust á við það. Að auki var skoðað hvort greina mætti einhverja sameiginlega reynslu eða upplifun hjá leikskólastjórum sem gæti haft áhrif á framtíðarskipulag í leikskólum. Í rannsókninni komu fram þrjú meginþemu. Fyrsta þema fjallar um það álag sem varð á tímabilinu, annað þemað fjallar um samvinnu sem myndaðist á tímabilinu og þriðja þemað lýsir hvernig starfsfólk og skólasamfélagið valdefldist á tímabilinu,“ segir Kristín í skýrslunni.

Ef vikið er að niðurstöðum þá gefa þær vísbendingar um að reynsla leikskólastjóra á tímum fyrstu bylgju Covid-19 á Íslandi sé þannig að þrátt fyrir snöggar breytingar og mikið álag hafi þeir upplifað að þetta hafi gengið vel. Niðurstöður benda til þess að leikskólasamfélagið hafi komið sterkara út úr tímabilinu sem heild og hafi tekist á við mjög erfitt verkefni með velferð barna og starfsfólks að leiðarljósi. Var það gert með skýru markmiði, sameiginlegri sýn allra, og göfugum tilgangi.

Niðurstöður gefa til kynna að þetta hafi náðst meðal annars með stuðningi, virðingu, samvinnu, umhyggjusemi, heiðarleika, hlustun, auðmýkt, trausti og góðum samskiptum. Reynsla þátttakenda gefur innsýn í að leikskólastjórum hafi tekist að leiða fólkið sitt áfram með góðri upplýsingamiðlun, lausnamiðaðri nálgun, jafningjabrag, ígrundun og teymisvinnu. Starfsfólk fékk að eiga hlutdeild í verkefninu sem varð til þess að það valdefldist og gat tekist á við verkefnið með aukinni ábyrgðarkennd.

Niðurstöður benda einnig til þess að mörg tækifæri til vaxtar hafi komið fram á tímabilinu og því mikilvægt að varpa ljósi á þessa reynslu og upplifun og veita innsýn í hversu mikið þrekvirki þetta var.

 


Kristín Gísladóttir, leikskólastjóri á Uglukletti í Borgarnesi.

 

Hægt er að kynna sér þessa áhugaverðu rannsókn hér.