Skráning á Menntafléttunámskeið gengur vel

Öll námskeiðin eru kennurum og starfsfólki í menntakerfinu að kostnaðarlausu.
Alls hafa um 450 kennarar af öllum skólastigum og -gerðum skráð sig á Menntafléttunámskeiðin 20 sem hefjast næsta haust, en skráning stendur yfir. Námskeiðin eru afar fjölbreytileg og langflest ætluð kennurum, en einnig eru nokkur ætluð stuðningsfulltrúum og frístundaleiðbeinendum.
Menntafléttan er samstarfsverkefni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Kennarasambands Íslands. Mennta- og menningarmálaráðuneytið styrkir Menntafléttuna og öll námskeiðin eru kennurum og starfsfólki í menntakerfinu að kostnaðarlausu. Viðfangsefni námskeiða snerta fjölbreytt svið náms, kennslu, sjálfbærrar þróunar, vellíðunar, frístundastarfs og forystu.
Sem dæmi um spennandi námskeið má nefna:
Undur náttúruvísinda í námi á yngsta stigi er sérstaklega ætlað kennurum á yngsta stigi grunnskóla. Markmið námskeiðsins er að styrkja leiðtoga í grunnskólum við að leiða hóp samkennara í námssamfélagi með samræðum um náttúrufræðinám á yngsta stigi grunnskólans. Þátttakendur fá tækifæri til að ræða og prófa leiðir til að efla hæfni nemenda sinna í náttúruvísindum og skoða hvernig nemendur nálgast þau á fjölbreyttan hátt.
Byggjum á forvitni og áhuga nemenda, aukin tækifæri til virkrar málnotkunar er sérstaklega ætlað kennurum á miðstigi í grunnskóla. Markmið námskeiðsins er að styrkja leiðtoga við að leiða hóp samkennara í að efla námssamfélag með samræðum um nám og kennslu í læsi. Á námskeiðinu verður farið í náms- og kennsluaðferðir sem liggja til grundvallar forvitni og áhuga nemenda.
Tungumál og tjáning í náttúruvísindum sem er ætlað náttúruvísindakennurum í framhaldsskólum. Markmið námskeiðsins er að búa til vettvang þar sem náttúruvísindakennarar í framhaldsskólum hafa tækifæri til að greina, skoða og efla þátt tungumáls og tjáningar í námi í náttúruvísindum á framhaldsskólastigi. Þátttakendur kynna sér kennsluaðferðir sem hafa það að markmiði að efla skilning á orðaforða náttúruvísindanna og efla færni í margvíslegri notkun vísindalegs orðfæris. Kennsluaðferðirnar tengjast til dæmis orðanotkun, lestri, ritun og umræðum.
Allar upplýsingar um námskeiðin má sjá á vef Menntamiðju og þar er einnig hægt að skrá sig.