Skora á ráðherra að tryggja börnum lágmarksrými

Fréttir|10. maí 2023

Fulltrúar Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla afhentu ráðherra menntamála áskorun í gær þar sem hvatt er til aðgerða er kemur að bættu starfsumhverfi leikskóla.

Félag leikskólakennara (FL) og Félag stjórnenda leikskóla (FSL) skora á yfirvöld menntamála að reglum um lágmarksrými sé fylgt og að reglur um starfsreglur leikskóla verði endurskoðaðar.

Fulltrúar FL og FSL áttu fund með mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, í gær. Á fundinum var skýrsla FL og FSL kynnt en í henni er sagt frá niðurstöðum starfshóps sem hafði það hlutverk að leggja fram tillögur um aðgerðir sem væru til þess fallnar að bæta starfsaðstæður barna og starfsfólks leikskóla.

Starfshópurinn skoðaði málin í þaula og lagði meðal annars fram spurningakönnun meðal félagsmanna í FL og FLS. Þá var könnun lögð fyrir fræðslustjóra hjá sveitarfélögum með að markmiði að fá yfirsýn yfir hugmyndafræði, ferla og sýn þeirra sem starfa að málefnum leikskólans.

Tillögur starfshópsins eru inntak áskorunarinnar sem FL og FLS afhentu ráðherra með formlegum hætti í gær.

Þær eru eftirfarandi

  • Sjá til þess að reglugerð um húsnæði og vinnustaði 581/1995 um lágmarksviðmið um rými fyrir hvern fullorðinn sé framfylgt. Gera skal ráð fyrir 4,8 m2 fyrir hvern fullorðinn
  • Endurskoða reglugerð um starfsumhverfi leikskóla 655/2009 m.t.t. leikrýmis fyrir hvert barn
  • Setja þarf inn lágmarksviðmið um stærð leikrýmis sem tilheyrir leikskóladeild, þ.e. þess svæðis sem nýtist til leiks og náms allan daginn
  • Í samræmi við niðurstöður starfshóps FL og FSL er lagt til að það viðmið verði ekki minna en 5,8 m2 fyrir hvert barn

 

Umræða um starfsumhverfi leikskóla er ekki ný af nálinni heldur hefur hún staðið yfir meðal leikskólafólks undanfarin ár. „Víða hefur verið kallað eftir auknu rými fyrir hvert barn, fámennari barnahópum og fækkun barna á hvern kennara,“ segir í skýrslu starfshópsins. Þá hafa félögin tvö, FL og FSL, ályktað um málið.