Skora á nýkjörna ríkisstjórn að standa við orð sín

Fréttir|24. janúar 2025

Samninganefndir allra aðildarfélaga KÍ lýsa miklum vonbrigðum með stöðu kjaraviðræðna við ríki og sveitarfélög. Þetta kemur fram í ályktun samninganefnda allra aðildarfélaga Kennarasambandsins. Þar segir jafnframt að viðhorf launagreiðenda í kjaraviðræðunum birtist sem virðingarleysi í garð kennara.

Samninganefndir allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands skora á nýkjörna ríkisstjórn að standa við orð sín í aðdraganda þingkosninga og leiða kjaradeilu KÍ við ríki og sveitarfélög til lykta. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fjölmennum fundi samninganefndanna í dag.

Fundurinn fór fram í húsakynnum KÍ við Borgartún og var skipaður fulltrúum samninganefnda FF, FG, FL, FSL, FT, FS og SÍ. Fundarstjóri var Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, en Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fór yfir stöðuna í kjaramálum. 

Fundurinn var sammála um að það sé algjört forgangsatriði að staðið verði við loforð frá 2016 um að ómálefnalegur launamunur sérfræðinga í fræðslustarfsemi annars vegar og á almennum markaði hins vegar skuli jafnaður á sex til tíu árum. „Þessi krafa stendur óhögguð," segir á ályktun fundarins. 

„Viðhorf launagreiðenda í kjaraviðræðunum birtist ekki aðeins sem virðingarleysi við kennarastéttina í heild heldur einnig sem virðingarleysi við hlutverk kennarastéttarinnar sem er að tryggja börnum okkar bestu menntun sem völ er á," segir jafnframt í ályktun samninganefndanna. 

Ályktunin í heild

Fundur samninganefnda allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands, haldinn í Borgartúni 30 föstudaginn 24. janúar 2025, samþykkir eftirfarandi ályktun:

Samninganefndir allra aðildarfélaga KÍ lýsa miklum vonbrigðum með stöðu kjaraviðræðna við ríki og sveitarfélög. Skýrar vísbendingar liggja fyrir um kerfislægan og ómálefnalegan mun á launum sérfræðinga í fræðslustarfsemi á opinberum markaði og sérfræðinga á almennum markaði. Í samkomulagi frá 2016 liggja fyrir loforð opinberra launagreiðenda um að jafna þennan mun á 6 til 10 árum. Samninganefndir allra aðildarfélaga hafa lýst því yfir að í yfirstandandi kjaraviðræðum sé algert forgangsatriði að við þetta verði staðið. Þannig verði kjarasamningar allra félaga að innibera skuldbindingu launagreiðenda og áætlun um hvernig jöfnun launa skuli náð á næstu árum. Þessi krafa stendur enn óhögguð. ​

Viðhorf launagreiðenda í kjaraviðræðunum birtist ekki aðeins sem virðingarleysi við kennarastéttina í heild heldur einnig sem virðingarleysi við hlutverk kennarastéttarinnar sem er að tryggja börnum okkar bestu menntun sem völ er á. Börn eiga rétt á að njóta fagmennsku og stöðugleika á skólagöngu sinni. ​

Fyrir hönd þeirra tólf þúsund félagsmanna sem saman mynda Kennarasamband Íslands skora samninganefndirnar á nýkjörna ríkisstjórn að standa við orð sín í aðdraganda kosninga og leiða þessa deilu til farsælla lykta.​

Nú er tíminn til að fjárfesta í kennurum.

Svipmyndir frá fundinum