Sköpunin skiptir máli

„Enginn dagur er eins og ég elska það!“ Ásta Kristín Svavarsdóttir, skólastjóri Jöklaborgar er Félagi 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.
Ásta Kristín Svavarsdóttir
Skóli: Jöklaborg
Starf: Skólastjóri
Ég er leikskólastjóri... í mjög stuttu máli vegna þess að sköpunin skiptir máli! Ég hef mikinn áhuga á fólki og löngun til að vinna með allskonar manneskjum. Í upphafi ætlaði ég nú í leiklistarnám. Kokhraust var það ekki hugmynd einu sinni að mögulega kæmist ég ekki inn, en vinnutími leikara var það sem stoppaði mig þá sem mér finnst mjög fyndið í dag. En störfin eiga það sameiginlegt að maður kynnist fjölbreytileika mannflórunnar og leikarar gætu lært mikið í minni stöðu held ég. Fyrst og fremst er ég heilluð af skapandi umhverfinu og yngra fólkinu okkar, börnunum sem segja hlutina beint út. Mér finnst gaman að vinna með þeim og sjá þau þroskast og ná markmiðum sínum. Enginn dagur er eins og ég elska það!
Besta stund vikunnar... þegar ég upplifi gleðina! Það var gott að velta þessari spurningu fyrir sér því ég komst að því að bestu stundirnar eru þó nokkrar. Að fara inn á deild eða í útiveru og tala við börnin. Að fá að heyra um allt sem þau kunna geta og vilja, af sigrum og rannsóknarefnum þeirra. Þegar ég finn og sé að starfsfólk er að leggja sig fram um að gullið glói sem þeim sannarlega tekst oft á dag. Þegar ég finn að fólki líður vel í vinnunni sinni og elskar starfið sitt.
Þessu myndi ég vilja breyta... að auðveldara væri og það gengi hraðar að láta suma drauma rætast! Að starfið í leikskólanum væri eftirsóknarverðara og að leikskólakennarar væru miklu fleiri. Ég reyndar hef það á tilfinningunni að það sé nú þegar byrjað að breytast og að leikskólinn sé í sókn. Ég vona að það sé rétt hjá mér. Að allir leikskólar fengju að syngja á sviðinu á barnamenningarhátíðinni á nokkurra ára fresti. Ég hef tekið þátt í því og það er dýrmæt reynsla fyrir börnin svo ég tali ekki um fyrir kennarana að upplifa það með hópnum sínum. Barnamenningarhátíð er einstaklega skemmtileg og ávallt vel heppnuð sem byggist á þátttöku leikskóla og gleðinni í starfinu.
Viðtalið birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.