Skólum skipt í sóttvarnahólf

Fréttir|1. nóvember 2020

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólahaldi vegna farsóttar var birt á vefnum fyrr í kvöld. Gildistími reglugerðarinnar er til 17. nóvember.

Heilbrigðisráðuneytið hefur birt reglugerð um takmarkanir á skólastarfi. Þær gilda frá og með 3. nóvember til og með 17. nóvember næstkomandi. 

 

Meðal þess sem kemur fram í reglugerðinni

Skipta á skólum í sérstök sóttvarnarhólf. Mest mega 10 fullorðnir vera saman í hverju hólfi. Þar skal halda tveggja metra bili og nota grímur ef það er ekki hægt. Þetta gildir um öll skólastig og skólagerðir.

Um nemendur gilda ólíkar reglur eftir aldri. Börn fædd 2010 eða fyrr mega flest vera 25 í sama hólfi og skulu viðhalda tveggja metra bili sín á milli eða nota grímur. Á sameiginlegum svæðum sem kalla á umgang mismunandi hópa skal nota grímur. Börn fædd eftir 2010 (í leikskóla og upp í 4. bekk grunnskóla) mega vera 50 í saman í hólfi og eru undanþegin bæði fjarlægðarmörkum og kröfum um grímunotkun.

Um framhaldsskólanemendur gilda sömu hópastærðir um kennslu í áföngum sem skipulagðir eru á fyrsta námsári og gilda um eldri bekki grunnskóla. Í öðrum áföngum er tíu manna hámark. Tveggja metra fjarlægð skal halda á milli fólks í framhaldsskólum og nota skal grímur í sameiginlegum rýmum. Grímur skal nota við kennslu þar sem ómögulegt er að viðhalda tveggja metra fjarlægð.

Í tónlistarskólum gilda tveggja metra fjarlægðarmörk og tíu manna hámarksstærð hópa. Þess skal gætt sérstaklega að nemendur sem ekki blandast í starfi annarra skóla blandist ekki í starfi tónlistarskóla. Nota skal grímur eins og mögulegt er.
 

Nánar er hægt að lesa um reglurnar á vef Stjórnarráðsins