Skólinn snýst um að hjálpa öllum nemendum að vinna sigra

Fréttir|16. desember 2025

Formaður Félags framhaldsskólakennara segir enga hugmyndafræðilega breytingu felast í nýsamþykktum framhaldsskólalögum er kemur að innritunarreglum.

Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, segir umræðu um nýsamþykktar breytingar á framhaldsskólalögum á villigötum. Breytingar á innritunarreglum séu í takti við fyrirkomulag sem hefur verið við lýði í framhaldsskólum um áratugaskeið. 

Þannig er ekki að eiga sér hugmyndafræðileg breyting er kemur að reglum um innritun í framhaldsskóla, að sögn Guðjóns Hreins, sem ræddi málið í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun. 

Guðjón segir umræðuna nú mennta- og menningarpólitíska og fjalla um eitthvað allt annað en raunveruleikann. Hann hafnar þeirri skoðun, sem hefur heyrst í sumum fjölmiðlum og hjá ákveðnu fræða- og stjórnmálafólki, að börnum sé enginn greiði gerður með því að hleypa þeim inn í framhaldsskóla hafi þau ekki staðist viðmið í lestri eða öðrum námsþáttum – enda séu þessir nemendur hvorki duglegir né samviskusamir. 

„Þetta er náttúrlega út úr öllu korti. Staðreyndin er sú að það komast allir í framhaldsskóla, hann er öllum opinn og það eru einfaldlega allir nemendur velkomnir. Nemendur með fjölbreyttan undirbúning og fjölbreytta hæfileika hafa möguleika innan framhaldsskólanna til að styrkja sig. Þetta er það sem skólarnir snúast um, að hjálpa nemendum að vinna sigra í lífinu," sagði Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, í Bítinu. 

 

Hlusta á viðtalið við Guðjón Hrein á Bylgjunni