Skólinn okkar – fyrsti þátturinn fer í loftið á þriðjudag

omið verður víða við í Skólanum okkar og lögð er áhersla á að fjalla á líflegan og faglegan hátt um það mikla og öfluga starf sem fram fer í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og tónlistarskólum landsins.
Skólinn okkar, átta þátta sjónvarpsröð um skóla- og menntamál, hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni Hringbraut þriðjudaginn 14. febrúar næstkomandi klukkan 20.30. Komið verður víða við í Skólanum okkar og lögð er áhersla á að fjalla á líflegan og faglegan hátt um það mikla og öfluga starf sem fram fer í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og tónlistarskólum landsins.
Í fyrsta þættinum verður fjallað um velferð barna og ungmenna spurningum eins og „hvernig líður nemendum“, „hvað eru kennarar og skólar að gera til að tryggja velferð barna“ og „líður börnum betur eða verr nú en áður“ velt upp. Meðal viðmælenda í þættinum eru Jón Torfi Jónasson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Sigríður Eyþórsdóttir, iðjuþjálfi í Hagaskóla í Reykjavík. Einnig er rætt við fjölda nemenda, kennara og annarra starfsmanna í skólum.
Umsjónarmenn Skólans okkar eru Aðalbjörn Sigurðsson, útgáfu- og kynningarstjóri KÍ, og Margrét Marteinsdóttir fjölmiðlakona. Þau hafa heimsótt skóla á öllum skólastigum síðustu daga og vikur. Markmið þáttanna er að varpa ljósi á mikilvæga þætti skólastarfs og um leið opna augu almennings fyrir því gróskumikla og öfluga starfi sem kennarar, skólastjórnendur og annað starfsfólk skólanna innir af hendi á degi hverjum.
Umfjöllunarefni þáttanna átta eru fjölbreytt og verður í næstu þáttum fjallað um stöðu flóttabarna í skólum, málefni tónlistarskóla, kennaranám, samfélagsmiðla og margt fleira. Skólinn okkar er samstarfsverkefni Kennarasambands Íslands og Hringbrautar.
Þættirnir verða á dagskrá Hringbrautar næstu átta þriðjudagskvöld, klukkan 20.30, en einnig verður hægt að horfa á þá á vefnum hringbraut.is.