Skólinn oft eina úrræðið

Flest allir eru að koma hingað til að eiga betra líf. Þá er skólinn oft eina úrræðið og markmiðið að aðstoða nemendurna til að þeir geti átt tækifæri hér á landi, segir Jóna Dís Bragadóttir, skólastjóri Tæknimenntaskólans, um nemendur á íslenskubraut fyrir útlendinga.
Um 130 nemendur stunda nú nám á íslenskubraut fyrir útlendinga í Tæknimenntaskólanum, af um 45 þjóðernum. Ástæður fyrir komunni til landsins eru margvíslegar og nemendahópurinn fjölbreyttur, en sumir eiga litla sem enga skólagöngu að baki, segir Jóna Dís Bragadóttir skólastjóri. „Flest allir eru að koma hingað til að eiga betra líf.“ Þá er skólinn oft eina úrræðið og markmiðið að aðstoða nemendurna til að þeir geti átt tækifæri hér á landi. Svava Jónsdóttir ræddi við Jónu Dís.
Áhugi Jónu Dísar á því að kenna íslensku sem annað mál kviknaði strax á fyrstu kennsluárum hennar. „Ég byrjaði að kenna í Varmárskóla í Mosfellsbæ árið 1999. Þar tók ég við bekk þar sem var stúlka frá Mexíkó sem kunni enga íslensku og það var mikil áskorun fyrir mig sem nýjan kennara. Upp frá því fékk ég mjög mikinn áhuga á því að kenna íslensku sem annað tungumál og hef verið að því síðan,“ segir hún.
Árið 2012 hóf Jóna Dís að kenna íslensku sem annað tungumál í Tækniskólanum. Nokkrum árum síðar, eða árið 2019, tók hún svo við sem skólastjóri Tæknimenntaskólans, sem telur nú um 2.300 nemendur. Þar af eru nú 130 nemendur á íslenskubraut fyrir útlendinga, frá um 45 þjóðlöndum, flestir frá Venesúela, Úkraínu og Afganistan.

Jóna Dís á útskrift í Hörpu. Jóna er með BA-próf í uppeldisfræði og íslensku auk þess að vera með kennsluréttindi á grunn- og framhaldsskólastigi. Þá er hún með M.Ed. í kennslu annars tungumáls og stjórnun menntastofnana.
Svigrúm til að mæta einstaklingnum í náminu
„Íslenskubraut fyrir útlendinga er tveggja ára námsbraut við Tæknimenntaskólann þar sem nemendur ljúka 115 einingum í fullu námi, líkt og aðrir nemendur. Aðaláherslan er, eins og nafnið gefur til kynna, á íslenskukennslu en fleira kemur til. Til dæmis læra nemendur sögu Íslands, upplýsingatækni, lífsleikni og stærðfræði. „Þar náum við að finna afburðanemendur sem hafa lokið stærðfræði áður en þeir komu til Íslands. Þessir nemendur fá námsefni við hæfi og hafa jafnvel lokið tveimur áföngum á önn,“ segir Jóna Dís.
Í svokölluðum verkstæðisáfanga kynnast nemendur svo hinum ýmsu iðngreinum sem kenndar eru við Tækniskólann. „Þetta er gert bæði til að venja þau við að fara til annarra kennara heldur en á íslenskubrautinni og til að kynna þau fyrir því sem er í boði í skólanum svo þau geti byrjað að hugsa um hvað þau vilja gera eftir íslenskubrautina.“
Að loknu námi við íslenskubrautina geta nemendur ákveðið að nýta einingarnar upp í annað nám, hvort sem það er iðnnám eða nám á stúdentsbraut. Þeir sem kjósa að ljúka stúdentsprófi þurfa að bæta við sig einu og hálfu til tveimur árum í viðbót.
Flest allir eru að koma hingað til að eiga betra líf. Sumir hafa gengið í gegnum mikinn hrylling áður en þeir koma og óska þess heitt og innilega að komast í skóla.
Langflestir velja þann kost að halda áfram námi og þeim fjölgar sífellt sem það gera. „Við erum að sjá alltaf fleiri og fleiri sem útskrifast af hinum ýmsu brautum skólans og það er fátt sem gleður okkur meira.“
„Við metum líka nám sem nemendur hafa lokið í heimalandi sínu upp í annað nám hjá okkur,“ segir Jóna Dís. „Þetta skiptir nemendur miklu máli þar sem þeim finnst þeir oft vera að missa af lestinni miðað við nemendur í heimalandi sínu. Ef nemandi treystir sér til að fara fyrr í almennt nám þá leyfum við það, við stoppum nemanda ekki í námi. Það verður alltaf algengara að nemendur taki til dæmis ensku og stærðfræði utan íslenskubrautar með íslenskunni.“
Fjölbreyttur nemendahópur úr ólíkum aðstæðum
Nemendahópurinn á íslenskubrautinni er afar fjölbreyttur og nemendur hafa komið til landsins af ýmsum ástæðum og úr ólíkum aðstæðum. „Það er töluvert um fylgdarlaus ungmenni sem koma hingað ein og eru þá á vegum barnaverndar. Aðrir koma hingað eldri og enn aðrir koma til landsins með foreldrum eða öðru foreldri,“ útskýrir skólastjórinn.
„Flest allir eru að koma hingað til að eiga betra líf. Sumir hafa gengið í gegnum mikinn hrylling áður en þeir koma og óska þess heitt og innilega að komast í skóla,“ segir Jóna Dís. „Sumir nemendur hafa jafnvel aldrei kveikt á tölvu eða hafa litla, eða jafnvel enga, skólagöngu að baki.“
Vegna þessa hefur íslenskubrautin verið í stöðugri þróun undanfarin ár, enda hefur nemendahópurinn breyst mikið, segir Jóna Dís. „Nú erum við til dæmis með miklu yngri nemendur og það þarf að koma til móts við þá.“
Frá vinstri: Adil Ibrahim Abdi, Muslihiddin Yatimov og Feras M. S. Omran
Ólíkur bakgrunnur kallar á ólíka nálgun
„Áherslur mínar eru að aðstoða þá nemendur sem eru á íslenskubrautinni til að þeir geti átt tækifæri á Íslandi. Það er gert með því að kenna þeim íslensku og kynna þá fyrir íslensku samfélagi,“ segir Jóna Dís og bætir við að þjónusta við nemendurna sé töluvert öðruvísi en við aðra nemendur skólans.
Skólinn er oft eina úrræðið fyrir nemanda sem er nýkominn til Íslands og starfsfólk reynir eftir fremsta megni að koma til móts við þá ungu nemendur sem sækja um nám við skólann, segir Jóna Dís. „Við aðstoðum þau meðal annars varðandi fæðingarvottorð barna, umsóknir um stúdentaíbúðir, skil á skattskýrslum, aðstoð við samskipti við lögfræðinga og Útlendingastofnun. Oft erum við einu Íslendingarnir sem þessir nemendur hafa samskipti við.“
„Til þess að sem best gangi hjá þessum nemendum tökum við þau í móttökuviðtal þar sem farið er yfir það sem snýr að skólanum, stundatöflu, mætingu, skólareglum, íþróttum og bara hvað það þýðir að vera í skóla,“ útskýrir hún. „Einnig þurfum við að fá upplýsingar um nemandann, svo sem hvort viðkomandi hafi verið í skóla áður, og varðandi til dæmis lestur, skrift og aðstæður. Þetta skiptir mjög miklu máli og reynum við eftir bestu getu að fá foreldra eða forráðamenn í þetta viðtal.“
Þess utan eiga allir nemendur brautarinnar sinn umsjónarkennara sem heldur utan um viðkomandi. Þá er Jóna Dís í góðum samskiptum við félagsráðgjafa fylgdarlausra nemenda í skólanum og er reiðubúin að grípa inn í þegar þess gerist þörf. „Mér finnst skipta miklu máli að vera í góðum tengslum við nemendur og legg ríka áherslu á það. Oft myndast mjög náin tengsl á milli kennaranna, mín og nemendanna.“
Og stuðningnum lýkur ekki þó að námið taki enda. „Þegar nemandi hefur lokið námi á íslenskubrautinni hjálpum við honum að sækja um á öðrum brautum skólans eða í öðrum skólum. Flest allir halda áfram hjá okkur á hinum ýmsu brautum og við erum með sérstakan umsjónarkennara sem fylgir þeim eftir. Við áttuðum okkur á því að þau þyrftu áfram stuðning og hvatningu því oft er baklandið ekki sterkt, sérstaklega hjá stúlkum,“ útskýrir Jóna Dís.

Fremsta röð frá vinstri: Rola M. S. Omran, Sulaiman S. S. Omran, Louise Margaritte Macalisang, Vinh Quang Ngo, Nga Thuy Thi Nguyen, Dinh Hoa Thi Nguyen, Juan Jose Montilva Rosales, Klent John Espiritu Libres, Samuel Alejandro Regnault Toro, Charles Capin, Jared Alled Aspacio Abella, Bajer Carlos Hassoun Alakabani, Ihor Kulyk, Oleksii Bakanov, Mykhailo Okhotnikov, Mykola Kovtun
Skólinn athvarf
Jóna Dís segir að brottfall sé yfirleitt mjög lítið á íslenskubrautinni. Nemendur vilji oft ekki fara heim úr skólanum á daginn og finnist vera algjör óþarfi að hafa jóla-, sumar- og páskafrí. Þá leiddi könnun, sem lögð var fyrir nemendur skólans í fyrrahaust, í ljós að nemendum á íslenskubraut líður vel í skólanum, í raun einstaklega vel, því nemendur íslenskubrautarinnar voru töluvert yfir meðaltali, og þau upplifa sig örugg í skólanum, segir Jóna Dís.
„Einnig kom í ljós að hvatning og aðstoð kennara skiptir miklu máli og var líka yfir meðaltali. Skólinn er athvarf og þar hafa myndast falleg vinasambönd milli nemenda frá hinum ýmsu löndum.“
Ég hafnaði á síðasta ári um 150 umsækjendum og velti því fyrir mér hvað verði um þetta unga fólk
Jóna Dís segir að fram undan sé að halda áfram að þróa brautina í takt við tímann. „Kennarar eru mjög duglegir að fylgjast með því sem er að gerast í samfélaginu og kippa því inn í kennsluna.“
Erfiðast að þurfa að vísa umsækjendum frá
„Það sem mér finnst verst í þessu er hvað ég þarf að hafna mörgum sem sækja um,“ segir Jóna Dís. „Ég hafnaði á síðasta ári um 150 umsækjendum og velti því fyrir mér hvað verði um þetta unga fólk. Mjög margir sækja bara um hjá okkur og hafa nánast ekkert annað úrræði. Hversu hræðilegt er það að vera 17 ára og hafa enga skólavist, hanga bara heima og bíða eftir engu?“
Tækifæri þessara nemenda eiga að vera þau sömu og annarra nemenda. „En þar sem úrræðin eru fá og fáir komast að í hverjum skóla, þá eru tækifærin því miður ekki þau sömu.“
„Það eru tilfelli þar sem ég hef hafnað nemanda; hann gafst ekki upp, kom aftur og aftur og á endanum tók ég hann inn, nokkrum dögum of seint, en hvað gerist? Viðkomandi útskrifast, heldur áfram og klárar iðnnám,“ segir hún. „Maður gleðst sérstaklega yfir því þegar nemandi, sem hefur verið samþykktur í skólann með því að yfirbóka hóp, klárar íslenskubrautina, og jafnvel iðnnám eða stúdentspróf. En þá veltir maður líka fyrir sér hvað hefði orðið um viðkomandi ef ég hefði ekki samþykkt hann. Þessi var kannski ótrúlega heppinn.“
