Skólinn mætti vera sveigjanlegri

Fréttir|31. mars 2021

Elías Gunnar Þorbjörnsson er félaginn í vorútgáfu Skólavörðunnar 2021

Félaginn er fastur liður í Skólavörðunni. Hugmyndin er einföld; leitað er til félagsmanns og hann spurður þriggja lykilspurninga. Nú sem hingað til hafa svör þátttakenda verið frábær. Hér á eftir svarar Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri Lundarskóla, spurningum Skólavörðunnar

Ég er skólastjóri vegna þess ...

Ég hef mjög gaman af því að vinna með fólki og þá sérstaklega nemendum og öllu því frábæra fólki sem starfar innan skólans okkar. Þetta fólk sinnir frábæru starfi við að koma til móts við krakkana okkar og finna leiðir til að gera skólastarfið fjölbreytt og árangursríkt. Starf skólastjórans er svo þannig að maður þarf svolítið að vera á tánum þar sem það getur alls konar komið upp á á hverri stundu svo maður verður að vera sveigjanlegur og láta ekki óvæntar uppákomur slá sig út af laginu. Það er líka svo gaman að fá að fást við þessi fjölbreyttu verkefni sem oft krefjast skapandi hugsunar og lausnaleitar með fólki sem hefur þekkingu og áhuga á skólamálum. 

Besta stund vikunnar ...

Þegar ég kemst út að hlaupa sem ég reyni að gera nokkrum sinnum í viku. Það er dásamlegt að fara út og hreinsa hugann, hvort sem það er í götuhlaupum eða náttúruhlaupum. Svo er voða gott þessa dagana þegar Manchester United vinnur hvern leikinn á fætur öðrum, þá er gaman að vera til.  

Í vinnunni eru bestu stundirnar þegar ég fæ að vinna með nemendum sem hafa á einhvern hátt rekist á í skólanum og fá tækifæri til að ræða við þá og fara yfir málin. Þegar það gengur vel og við náum sambandi og finnum lausnir þá er ástæðan fyrir starfinu komin. 

Þessu myndi ég vilja breyta ...

Ég myndi vilja að skólinn gæti verið sveigjanlegri á margan hátt svo við gætum sinnt nemendum okkar enn betur en við gerum í dag. Það eru mjög margir rammar utan um starfið sem geta verið til trafala á stundum. Svo væri gott að þjónusta við nemendur í vanda yrði heildstæðari og ríki og sveitarfélög hættu að benda á hvort annað og tækju myndarlega á því verkefni sem börn í vanda glíma við. Vonandi verða ný „Farsældarlög” okkur til framdráttar í þessum málum. 

Félaginn birtist fyrst í Skólavörðunni, 1. tbl. 2021