Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki

Starfshópur hefur skilað mennta- og menningarmálaráðherra drögum að stefnu um menntun barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ, segir vinnu starfshópsins hafa verið gjöfula og vonast til að tillögurnar komist sem fyrst til framkvæmda.
Starfshópur hefur skilað mennta- og menningarmálaráðherra drögum að stefnu um menntun barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Markmið vinnu þeirra var að greina stöðu þess fjölbreytta hóps í menntakerfinu, setja fram tillögur til úrbóta og hugmyndir um aðgerðir sem lagt er til að ráðist verði í. Auk íslenskrar stefnumótunar rýndi hópurinn alþjóðlegar stefnur, viðmið og rannsóknir. Starfshópurinn hóf störf í ársbyrjun 2019.
Formaður stýrihópsins var Jóhanna Einarsdóttir prófessor við Háskóla Íslands. Fulltrúi Kennarasambands Íslands var Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ.
Hún segir að vinnan í starfshópnum hafi verið gjöful. Menntun og farsæld nemenda með annað móðurmál en íslensku er eitt af megináhersluefnum Kennarasambandsins. „Flest af þeim áhersluefnum sem KÍ hefur sett sér í þessum málaflokki koma fram í tillögunum sem snerta fjölmenningarlegt skólastarf, samfellt nám, starfsþróun og menntun kennara svo eitthvað sé nefnt,“ segir Anna María.
Ísland er fjölmenningarsamfélag og segir Anna María skólann gegna mikilvægu hlutverki í að hjálpa nemendum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakrunn að skapa sér líf og góða framtíð í samfélaginu. Hún vonast einnig til að tillögurnar komist sem fyrst til framkvæmda og skólum, skólastjórnendum og kennurum séu tryggðar sem bestar aðstæður til að vinna að þessu brýna verkefni.
Hvatning til góðra verka
„Þetta er stórt og mikilvægt skref í þeirri vegferð okkar að efla alla umgjörð í menntakerfinu til að bæta aðstæður nemenda með annað móðurmál en íslensku. Ég er virkilega stolt af þessari vinnu og hún er okkur hvatning til góðra verka. Sumt getum við ráðist í strax, annað verður útfært nánar í tengslum við nýja menntastefnu en brýnast er að við vinnum þetta samfélagslega mikilvæga verkefni í nánu samstarfi. Við höfum allt að vinna í að bæta þarna úr og það mun skila okkur árangri sem í raun er ómetanlegur – betri lífsgæðum fyrir íslenskt samfélag,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Stefnt er að því að halda ráðstefnu um þennan málaflokk í haust.
Í stefnudrögunum er að finna sjö tillögur og fjölda aðgerða sem nú verða teknar til nánari umfjöllunar á vettvangi ráðuneytisins.
Tillögur starfshópsins
Fjölmenningarlegt skólastarf
Fjölmenningarlegt skólastarf, sem fagnar margbreytileika, fjölbreytni í nemendahópnum og byggir á auðlindum og styrkleikum barna og ungmenna, verði aðalsmerki skólakerfisins.
Samfellt nám
Samfella milli leik-, grunn- og framhaldsskóla og frístundaheimila verði sett í öndvegi til að tryggja að byggt verði á markvissan hátt á fyrri reynslu og þekkingu barnanna frá einu skólastigi yfir á annað. Unnið verði markvisst að því að styrkja leikskólastigið, auka þátttöku barna af erlendum uppruna í starfi frístundaheimila og fjölga tækifærum nemenda af erlendum uppruna til að stunda og ljúka námi í framhaldsskólum.
Íslenska sem annað mál
Börn og ungmenni, sem læra íslensku sem annað mál, fái íslenskukennslu við hæfi og viðeigandi stuðning í námi svo lengi sem þörf er á. Lögð verði áhersla á að þau geti sem fyrst stundað nám jafnfætis jafnöldrum sínum sem eiga íslensku að móðurmáli. Sérstaklega þarf að styðja börn, sem eru fædd hér á landi eða koma ung til landsins, að þau fái strax í leikskóla málörvun í íslensku og fylgst sé með að þau taki reglulegum framförum.
Foreldrar og fjöltyngi
Litið verði á menningu og móðurmál barnanna sem auðlind sem kemur börnunum og samfélaginu til góða. Foreldrar eru mikilvægir samstarfsaðilar sem búa yfir ómetanlegri þekkingu sem nýta þarf í þágu barnanna.
Umsækjendur um alþjóðlega vernd
Lögð verði áhersla á að börnum og ungmennum, sem eru í leit að alþjóðlegri vernd, verði tryggð menntun og skólaganga eins fljótt og unnt er í samræmi við aldur þeirra og þroska. Miðað verði við að ekki líði lengri tími en fjórar vikur frá því að barn sækir um alþjóðlega vernd þar til það hefur fengið skólaúrræði.
Menntun kennara
Tryggt verði að kennsla barna og ungmenna af erlendum uppruna verði hluti af grunnmenntun allra kennara og tómstunda- og félagsmálafræðinga. Jafnframt að kennarar, skólastjórnendur og starfsfólk frístundaheimila sæki símenntun og starfsþróun um fjölmenningu og kennslu barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
Menntarannsóknir
Komið verði á fót markvissu átaki til að efla menntarannsóknir sem leið til að stuðla að gæðum í skólakerfinu.