Skólinn eins og ein stór fjölskylda

Kennarastarfið heillaði Olgu Hjaltalín Ingólfsdóttur frá unga aldri. Auk þess að sinna kennslu er Olga heimavistarstjóri við Framhaldsskólann á Laugum. Skólavarðan spurði hana spjörunum úr um fjölbreytt og spennandi starf og líf á Laugum.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á skólastarfi, strax í æsku hafði ég mikinn metnað og stundaði námið af kappi. Skipulagið, stundatöflur og áætlanir voru svona rammi sem mér líkaði mjög vel og ég skipulagði jafnvel mitt eigið nám í verkföllum kennara,“ segir Olga.
„Þegar ég var í tíunda bekk fékk ég fyrst þá hugmynd að kennarastarfið væri heillandi og að það gæti hentað mér mjög vel. Það var fyrst og fremst vegna þess að þá fékk ég kennara sem hafði alla þá kosti sem mér finnst að góður kennari þurfi að hafa.“
„Brynhildur Þráinsdóttir var bæði ströng og hlý, alvarleg og fyndin, virðuleg og frjálsleg – hún einfaldlega heillaði mig upp úr skónum! Ég hugsa oft til hennar þegar ég ígrunda starf mitt og vona að ég hafi þessa sömu kosti og hún, þeir eru nokkurs konar leiðarljós mitt í þessu starfi.“
Starfið við Framhaldsskólann kallaði
Olga var svo 24 ára þegar hún útskrifaðist úr kennaranáminu og búsett á Akureyri. „Ég var í fæðingarorlofi þann vetur en haustið eftir sá ég auglýsta stöðu enskukennara við Framhaldsskólann á Laugum og ákvað að sækja um, en ég hafði alltaf haft meiri áhuga á að starfa í framhaldsskóla en grunnskóla, þrátt fyrir að hafa fengið leyfisbréf á báðum skólastigum.“
„Eftir umsóknarferlið bauð Valgerður Gunnarsdóttir, þáverandi skólameistari, mér starf við skólann sem ég þáði með þökkum og er hér enn, að ljúka mínum fjórtánda vetri við skólann.“

Lært að lifa í sátt og samlyndi
Olga sinnir ekki einungis kennslu við skólann heldur er hún einnig heimavistarstjóri, en hvað nákvæmlega felst í því starfi? „Starf heimavistarstjóra er að stýra heimavistinni, raða nemendum á herbergi, kenna nemendum að búa í sátt og samlyndi, hafa eftirlit með umgengni, þrifum og samskiptum nemenda. Mikill tími fer í viðtöl við nemendur, að vera þeim innan handar og aðstoða þá við allt mögulegt.
Agamál skipa líka stóran sess í daglegu starfi heimavistarstjóra en eins og ég segi við nemendur mína þá gera allir mistök, það skiptir mestu máli að viðurkenna þau og læra af þeim, saman getum við leyst öll mál,“ segir hún.
„Mér finnst starfið helst gefandi þegar ég finn að ég næ að hafa áhrif á nemendur á jákvæðan hátt, hjálpa þeim að verða góðir samfélagsþegnar í því lýðræðislega samfélagi sem við búum í, bera virðingu hvert fyrir öðru, sýna tillitssemi og almennt ná tökum á eigin lífi. Unglingsárin eru mótandi og þeim fylgir oft sveiflukennd líðan. Ég vona að mitt starf sem heimavistarstjóri og kennari skili einhverju góðu til nemenda, að ég gefi þeim gott fordæmi og stuðli að alhliða þroska þeirra og velgengni í því sem þeir taka sér fyrir hendur í framtíðinni.“
„Kennarastarfið er gefandi á sama hátt og staða heimavistarstjóra, að sjá nemendur víkka sjóndeildarhringinn, læra eitthvað nýtt og að fá að hafa áhrif á líf ungmenna,“ bætir Olga við.
Agamálin geta tekið sinn toll
„Helstu áskoranir mínar sem bæði kennari og heimavistarstjóri eru líklega agamálin,“ segir Olga og útskýrir nánar: „Að hjálpa nemendum að leiðrétta óæskilega hegðun með þeim verkfærum sem til eru til að stuðla að því að þeir nái árangri, bæði námslega og félagslega.“
„Þessi mál geta verið mjög erfið og þau taka alveg sinn toll, í þau fer mikil orka og vinna og það er stundum erfitt að hætta að hugsa um þau að vinnudegi loknum.“

Mynd sem Kristinn Ingi Pétursson tók af Þróttó, gamla skóla að vetrarlagi.
Náið og öflugt samfélag á Laugum
Olga segir starfsmenn og nemendur á Laugum vera eins og ein stór fjölskylda. „Hingað koma nemendur oft langt að og hafa lítið bakland á svæðinu og þá komum við starfsmennirnir sterkir inn og aðstoðum nemendur við allt milli himins og jarðar.“
„Samfélagið er náið og öflugt og hér er alltaf líf og fjör. Því er kannski bara vel lýst með einkunnarorðum skólans, metnaður, trúmennska, tillitssemi og glaðlyndi.“
Hundrað ár frá fyrstu skólasetningunni
Það verður stór og mikil afmælishátíð í Framhaldsskólanum á Laugum fyrsta vetrardag, 25. október 2025, en þá eru 100 ár liðin frá því að skólinn var settur í fyrsta sinn. Olga segir að sérstök nefnd sé að vinna að undirbúningi hátíðarinnar og nóg sé fram undan.
„Meðal annars er verið að gera heimildamynd um sögu skólans. Einnig hefur verið ákveðið að gera styttu af tveimur ungmennum en hún mun standa við tjörnina hér á Laugum sem tákn um vináttu Laugamanna. Hollvinasamtökin Vinir Laugaskóla standa fyrir söfnun vegna styttunnar og fyrirtæki og margir fyrrum nemendur hafa nú þegar styrkt verkefnið sem við erum afar þakklát fyrir.“
Þá hefur Ragna Heiðbjört Ingunnardóttir, kennari við skólann, sett upp áfanga um sögu Laugaskóla þar sem kafað er ofan í marga þætti skólastarfsins og þá þróun sem hefur orðið á þessum 100 árum frá stofnun hans.
„Við viljum að afmælið verði okkar allra, sérstaklega núverandi skólasamfélags og stefnum á að gera okkur dagamun á ýmsan hátt á þessari önn og næstu.“ Til dæmis verður boðið upp á víðfeðma dagskrá á sumardaginn fyrsta og dýrindis veitingar að hætti Kristjáns Guðmundssonar sem hefur verið matráður við skólann í yfir 30 ár.

Skólasvæði Framhaldsskólans á Laugum. Mynd/Kristinn Ingi Pétursson