Skólinn á að vera hjarta samfélagsins

Fulltrúar grunnskólans fóru í saumanna á stöðunni í skólanum við Rauða borðið í gær. Þorsteinn Sæberg, formaður SÍ, Mjöll Matthíasdóttir, formaður FG, Gróa Axelsdóttir skólastjóri og Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur voru gestir Gunnars Smára Egilssonar.
Í tilefni af herferð Kennarasambandsins - Fjárfestum í kennurum - verða skólamálin rædd við Rauða borðið út vikuna. Leikskólinn hóf leika á mánudaginn, framhaldsskólinn fylgdi á þriðjudaginn og í dag er komið að grunnskólanum áður en tónlistarskólinn slær svo botninn í á fimmtudaginn.
Í þætti gærdagsins var farið djúpt ofan í saumana á grunnskólamálum og fjallað um breytingar á starfinu undanfarin ár, aukið umfang, hópasamsetningu og -stærðir, kennsluumhverfið, samfélagsumræðuna og ekki síst mönnunarvanda skólanna. Viðmælendur voru Gróa Axelsdóttir, skólastjóri Stapaskóla í Reykjanesbæ, Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara og Þorsteinn Sæberg, formaður Skólastjórafélags Íslands.
Skólinn án kennara
„Það er vont ástand í dag hvað varðar það að geta ekki mannað skólanna“, segir Þorsteinn. „Við erum að sjá hæstu tölur sem við höfum séð í meira en áratug varðandi fjölda leiðbeinenda við kennslustörf í skólum,“ bætir Mjöll við. „Á síðasta ári var þetta fimmtungur sem var við kennslustörf sem ekki hafði til þess tilskilin réttindi [í grunnskólanum] og það gefur auga leið að þetta veldur ákveðnu álagi á kerfið. Svo erum við náttúrulega enn að sjá að það er ekki búið að klára að manna allar kennarastöður þetta haustið. Það er enn verið að auglýsa eftir kennurum og menn eru svona í einhverjum reddingum bara til þess að skólastarf geti hafist,“ segir Mjöll
„Við viljum að kerfið sinni þessu verkefni að mennta börnin okkar og til þess þurfum við fagfólk því tölfræðin segir okkur mjög skýrt að þeir sem hafa fagmenntun staldra lengur við í starfi. Starfsmannavelta í þeirra hópi er verulega minni heldur en þeirra sem ekki hafa réttindin og þetta skiptir miklu máli fyrir stöðugleika í skólastarfinu. Við höfum notað þarna dæmi sem er raunverulegt dæmi um nemanda í fyrsta bekk sem hafði fimm umsjónarkennara á fyrsta skólaárinu sínu. Þetta er ekki eina dæmið um ör skipti og þetta náttúrulega gefur auga leið að það er enginn stöðugleiki í námi barna sem að þurfa að upplifa þetta. Og þannig viljum við ekki hafa kerfið. Við viljum breyta því og erum að kalla út í samfélagið. Komið á vagninn með okkur – við þurfum að breyta þessu. Það þarf að búa kennurunum góðar starfsaðstæður,“ bætir Mjöll við.
Kristín tekur undir. „Ég veit til dæmis að þegar skólaárið var hafið núna, að í Reykjavík þá hafði ekki tekist, 4. september, að manna 20,6 stöðugildi. Ef við yfirfærum þetta á aðstæður – þetta gætu verið 20 umsjónarkennarar, það þýðir að þá erum við með 20 bekki sem vantar umsjónarkennara. Þetta gætu líka verið sérkennarar, og ég veit dæmi þess að það hafi ekki tekist að ráða sérkennara í skóla – þá erum við með börn til dæmis með íslensku sem annað tungumál, við erum með börn með málþroskavanda, og það er ekki sérkennari á staðnum. Og það segir sig sjálft að þó að við séum öll af vilja gerð með okkar fagmennsku að vopni, leitum allra leiða, að þá er margfalt erfiðara að mæta nemendum á þeim stað sem þeir eru staddir þegar að aðstæður eru svona,“ segir Kristín.
Skólinn ætti að vera hjarta samfélagsins, segir Þorsteinn. „Við viljum samfélagslegt átak í að við veltum fyrir okkur hvernig við getum bætt skólastarfið og hvaða leiðir eru til lausna þar.“ Þar skiptir mönnunin gríðarlega miklu máli, segir hann. Við séum að fara inn í nýtt skólaár vitandi það að ástandið sé að stefna til verri vegar. Hlutfall leiðbeinenda hafi verið 20% í fyrra og klárar vísbendingar séu uppi um að sú prósentutala hækki á komandi skólaári.
„Það að stjórnendur séu núna í þriðju viku skólastarfs enn ekki búnir að manna kennsluna það er bara verulegt áhyggjuefni,“ segir Þorsteinn. Þetta er bara hlutur sem við þurfum bókstaflega að fara að átta okkur á að gengur ekki – en hvaða leiðir eru til þess að við leysum þennan vanda, við þurfum svolítið að samfélagið komi með okkur í það að komast að því, segir hann.
Tónlistarskólinn næstur á dagskrá
Ekki missa af Rauða borðinu í kvöld þegar fulltrúar tónlistarskólans mæta til leiks. Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Júlíana Rún Indriðadóttir, skólastjóri Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar verða þá gestir Gunnars Smára ásamt fulltrúum Fagráðs FT, þeim Hjörleifi Erni Jónssyni, skólastjóra Tónlistarskólans á Akureyri og Jóhanni Inga Benediktssyni, kennara í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.
