Skóli er fólk – en ekki hús

Hvert sæti var skipað í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á mánudag þegar vel sóttur baráttufundur kennara fór fram. Félagsfólk KÍ í öllum skólagerðum sótti fundinn og ræddi kjarabaráttuna og mikilvægi þess að kennarastéttin standi saman.
Baráttuhugur og rífandi stemning einkenndi samstöðu- og baráttufund kennara sem fram fór í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á mánudag. Félagsfólk Kennarasambandsins í öllum skólagerðum sótti fundinn. Auk þess var þingmönnum kjördæmisins og sveitarstjórnarfólki boðið að koma. Flutt voru tónlistaratriði og heitt var á könnunni.
Umræðuefni fundarins var meðal annars að eiga samtal um þá stöðu sem komin er upp vegna vanefnda á samkomulagi frá 2016 um jöfnun lífeyrisréttinda og jöfnun launa milli markaða. Kennarar í Tónlistarskóla Ísafjarðar hafa, sem kunnugt er, verið í tímabundnu verkfalli frá 29. október síðastliðnum. Verkfall þeirra stendur til 20. desember hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, ávarpaði fundinn. Hann fór yfir stöðuna í kjaraviðræðum og skýrði kröfur kennara og aðgerðir. Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, var fundarstjóri. Þrír kennarar stigu á stokk.
Getum ekki lifað á hugsjóninni einni saman
Andri Pétur Þrastarson, kennari við Tónlistarskóla Ísafjarðar, flutti erindi sem hann kallaði Hvers virði er tónlistarkennsla? Hann sagði kalda vetrarvinda leika um Tónlistarskólann enda hefði skólinn staðið þögull síðan í lok október. „Þegar engir eru kennarar eða nemendur verður skólahús að steypuklump. Því skóli er fólk – en ekki hús", sagði Andri í ræðu sinni.
„Við erum hugsjónafólk sem trúir því að tónlist sé eitt af því sem gerir lífið þess virði að lifa því. En við getum ekki lifað á hugsjóninni einni saman - við erum háskólamenntaðir sérfræðingar og eigum að fá borgað sem slíkir. Rannsóknir sýna bein tengsl milli tónlistarnáms og jákvæðs málþroska, hreyfifærni og rökhugsunar barna. Og fyrir ekkert svo löngu birti menningar- og viðskiptaráðuneytið skýrslu þar sem fram kom að hver króna, sem varið er í skapandi greinar, verði að þremur krónum í hagkerfinu," sagði Andri jafnframt.
Friður og sanngjörn umbun
Guðlaug Jónsdóttir, kennari við Grunnskólann á Ísafirði, gerði samstöðu og virðingu fyrir kennarastarfinu að umtalsefni í sinni ræðu. Hún taldi upp falleg orð sem lýsa kennurum best; orð eins og gæska, hlýja, trúnaður, traust, þolinmæði, þrautseigja, ábyrgð, festa og fagmennska. „Megi kennarastarfið lifa og hljóta þá virðingu í samfélaginu sem það á skilið. Megi kennarar fá frið og sanngjarna umbun fyrir störf sín við að fræða – við að greiða götu nemenda sinna, létta þeim sporin á leið þeirra til manns," sagði Guðlaug.
Skólastjórinn Hildur Sólmundsdóttir ræddi rétt barna á leikskólaaldri til náms. „Börn í leikskóla hafa vissulega rétt á því að grunnþörfum þeirra sé sinnt en það sem virðist ekki vera á allra vitorði er að börn á leikskólaaldri hafa líka rétt til náms. Þau eru ekki bara að leika sér, þau eru nemendur. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og í skólum fer fram nám. Til að nám geti farið fram þarf að fara fram kennsla og til að kennsla fari fram, þurfum við kennara," sagði Hildur.
Hún minnti á að kennarar eiga stóran þátt í að móta nýjar kynslóðir; kynslóðir sem munu taka við samfélaginu. „Læknar, ljósmæður, lögreglufulltrúar, lögfræðingar, leikarar, hjúkrunarfræðingar, hárskerar, heimspekingar, kokkar, klæðskerar, kennarar, sjómenn, söngvarar, tónlistarfólk, trésmiðir, rafvirkjar, rútubílstjórar, íþróttafólk, þjálfarar, þingmenn, flugmenn og forsetar framtíðarinnar eru í mínum höndum. Allir þeir aðilar sem gera samfélagið að því sem það er og mun verða, eru í höndum kennara," sagði Hildur Sólmundsdóttir í sínu erindi.