Skólavefur um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna

Fréttir|8. maí 2015

Skólavefur 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna hefur verið settur í loftið. Vefurinn er einkum hugsaður fyrir samfélagsgreinar hjá eldri bekkjum grunnskóla. Á vefsíðu 100 ára kosningaréttar kvenna segir að vefinn megi auðveldlega nýta sem tengingu við aðra aldurshópa og aðrar kennslugreinar. Á vefnum sé að finna verkefni og upplýsingar með tilvísunum í ítarefni.

Meginmarkmið vefsins eru þríþætt:

  • Nemendur þekki helstu einstaklinga, áfanga og ártöl sem tengjast baráttu kvenna fyrir jöfnum kosningarétti á við karla.
  • Nemendur átti sig á mikilvægi jafnréttis, lýðræðis og mannréttinda.
  • Nemendur geti sett sig í spor þeirra sem uppi voru á þeim tíma sem viðfangsefnið nær yfir.

Vefurinn er opinn og gjaldfrjáls. Höfundur er Halldór Björgvin Ívarsson, grunnskólakennari í Árbæjarskóla.
 

Sýningarhald, sjónvarp og pistlar

Sýningin „Kosningaréttur í 100 ár“ verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni 16. maí næstkomandi og stendur fram í mars á næsta ári. Tvær farandsýningar eru í boði; önnur á vegum Landsbókasafns Íslands og er hægt að panta hana í síma 525 5700. Hin er á vegum Kvenréttindafélags Íslands og upplýsingar um þá sýningu er að finna á vef félagsins.

Þá er vert að benda á sjónvarpsþættina „Öldina okkar" sem eru sýndir á sunnudagskvöldum. Þættirnir eru stuttir og hægt er að nálgast þau í Sarpi RÚV. Fróðlegir pistlar birtast á vef Árnastofnunar á hverjum mánudegi í tilefni afmælisins. 
 

Facebook-síða afmælisnefndar.