Skólavarðan spyr...

Fréttir|13. janúar 2023

Skólavarðan lagði nokkrar vel valdar spurningar fyrir skólasamfélagið í nýjasta tölublaði fagritsins.

Anna Lena Halldórsdóttir, grunnskólakennari við Garðaskóla

Eftirlætiskennarinn minn: Það eru nú ansi margir sem koma upp í huga mér þegar ég hugsa til baka. En minn allra mesti uppáhaldskennari var Anna Sveinsdóttir sem kenndi mér í 4. og 5. bekk í Flataskóla. Hún var einstaklega ljúf og hugsaði vel um okkur krakkana. Ég fékk notið mín í kennslustundum og leið vel í skólanum og tel ég að hún hafi átt mikinn þátt í því. Hún var alltaf glöð og brosandi.

Besta kennsluráðið: Að vera tilbúin að breyta skipulagi kennslunnar því hún er svo lifandi að þú veist aldrei hvað getur komið upp á, ekki festa sig of mikið í skipulagi dagsins, vera svolítið spontant.

Þau skólamál sem brenna á mér: Að nemendur fái námsefni við hæfi og þannig aukist áhugi þeirra og velgengni í námi.

 

Arnrún María Magnúsdóttir, leikskólakennari og verkefnastjóri Lausnahringsins í Brákarborg

Eftirlætiskennarinn minn: Helgi Jóhannsson, íþrótta-og sundkennari í Þelamerkurskóla, hann mætti okkur alltaf þar sem við vorum stödd. Hvatti mig endalaust áfram og sagði að æfingin skapaði meistarann. Hann var alltaf með húmor og gleði sem skiptir miklu máli.

Besta kennsluráðið: Er að hafa húmor, lýðræði og tónlist með í för - það virkar alltaf og skiptir svo miklu máli.

Þau skólamál sem brenna á mér: Eru forvarnir gegn ofbeldi á börnum - að eiga samtalið við börnin - fræða þau, ekki hræða.

 

Björg Sæmundsdóttir, kennari í viðbótarkennaranámi við HÍ

Eftirlætiskennarinn minn: Guðný Haraldsdóttir sem kenndi mér í miðdeild (á síðustu öld). Að mínu mati var hún hinn fullkomni kennari, með góðan aga og bekkjarstjórnun en á sama tíma mannleg og blíð.

Besta kennsluráðið: Fylgja hjartanu, hafa gaman - hingað til hefur enginn dáið úr vondri kennslu.

Þau skólamál sem brenna á mér: Dyslexía/lesblinda - og hvernig þeim nemendum er mætt eða heldur EKKI mætt í skólakerfinu.

 

Hulda Hauksdóttir, grunnskólakennari við Njarðvíkurskóla

Eftirlætiskennarinn minn: Gerard Cinotti, frönskukennari í framhaldsskóla. Vegna þess að hann hafði ástríðu fyrir að kenna tungumálið sitt og gerði kennslustundirnar skemmtilegar.

Besta kennsluráðið: Að mæta ALLTAF undirbúin í allar kennslustundir.

Þau skólamál sem brenna á mér: Að grunnskólar verði SÍMALAUSIR þannig að börn geti betur þjálfað félagsfærni sína í grunnskóla, aukið íslenskukunnáttu sína með auknum samtölum sín á milli, minnkað kvíða vegna áreitis af samfélagsmiðlum og upplifað öryggi um að ekki sé verið að mynda þau að þeim forspurðum, svo dæmi séu nefnd.