Skólavarðan mælir með pappír, sagnfræði og rómantík

Fréttir|17. maí 2024

Margt má gera sér til dundurs að loknum löngum vinnudegi. Skólavarðan hefur horft á frábæra kennaramynd, brotið pappír, aukið kunnáttu í mannkynssögu og gleymt sér yfir hágæða „romcom“ eins og enskir kalla rómantíska gamanþætti. Njótið vel kæru lesendur!

Das Lehrerzimmer — Grunnskóladrama af bestu gerð

Kvikmynd 

Þýska kvikmyndin Das Lehrerzimmer (Kennarastofan) kemur skemmtilega á óvart. Þetta er með betri kennaramyndum síðari ára. Myndin gerist í þýskum grunnskóla og við fylgjumst með Cörlu Nowak sem er afbragðskennari og í góðu sambandi við nemendur. Upp kemur þjófnaðarmál í skólanum og Carla ákveður að komast til botns í málinu. Þá má segja að fjandinn verði laus og lausn málsins verður afar krefjandi, svo ekki sé meira sagt.  

 

The Rest is History — Sagan skýr og skemmtileg

Hlaðvarp

Fyrir þau sem hafa gaman af mannkynssögu er vert að mæla með breska hlaðvarpinu The Rest is History. Við stjórnvölinn eru sagnfræðingarnir Tom Holland og Dominic Sandbrook. Frásagnargáfa og kunnátta þeirra er ómæld og þeim tekst að skýra flókna hluti sögunnar á einstaklega þægilegan og skemmtilegan hátt. Ekkert er þeim óviðkomandi og efnisvalið er afar fjölbreytt. Þegar þetta er skrifað eru þættirnir orðnir 565 og því úr nógu að moða ef áhugi er fyrir hendi. 

 


 

Origami — Pappír og dass af þolinmæði

Fönduriðja

Við vitum flest að það er gott að leggja tölvur og síma til hliðar að loknum vinnudegi. Ein leið til slökunar er Origami sem er japönsk pappírsbrotalist. Það þarf bara ferningslaga pappír og þolinmæði. Vefurinn er uppfullur af leiðbeiningum fyrir byrjendur og svanurinn er upplagt byrjendaverk. Ef vel gengur er hægt að verða sér úti um ekta origamipappír en til að byrja með má nota pappír úr prentaranum.  

 


 

One Day — Saga af strák og stelpu

Þáttaröð á Netflix


Rómantískir gamanþættir eru misjafnir að gæðum, eins og flestir vita. Þáttaröðin One Day sker sig þar úr, enda hið besta sjónvarpsefni. Myndin segir sögu Dexters og Emmu sem halda út í lífið eftir að hafa verið saman í einn dag eftir útskrift. Þau gleyma aldrei hvort öðru og þróa samband sem við fáum að skyggnast inn í einn sumardag á hverju ári. Vel skrifaðir og vel leiknir þættir sem auðvelt er að gleyma sér yfir. 

Ég var bara að bíða eftir þér

Átak — Vinafundur bætir heilsuna

Hvar sem er 

Einamanaleiki er vaxandi vandamál í heiminum ef marka má niðurstöður rannsókna. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hefur sett einmanaleika á lista yfir heilsuógnir samtímans. COVID og samfélagsmiðlar kváðu hafa haft áhrif til heins vera. Það kostar lítið sem ekkert að efna til vinafunda, heima, á kaffihúsi eða í göngutúr. Verum dugleg að rækta vini og vandamenn. Það græða allir á því.  

 


Bréfa og kortaskrif

Skrif og dundur

…og talandi um að rækta vini og vandamenn. Það er alltaf gaman að fá óvæntan póst sem ekki er reikningur eða auglýsingabæklingur. Skólavarðan mælir með póstkortasendingum frá útlöndum til ástvina á klakanum. Hægt er að segja frá fríinu, staðháttum, hitastiginu og allskonar skemmtilegu. Frímerki er hægt að fá í flestum sjoppum, búðum og sölustöndum og póstkassa má oftast finna á víð og dreif um borgir og á flugvellinum fyrir heimferðina. Annars má alltaf lauma því í lúguna næst þegar farið er í heimsókn til viðtakandans.