Skólavarðan mælir með óvæntum ferðalögum og eyrnakonfekti

Fréttir|23. maí 2025

Nýtt og spennandi lesefni, orðaleikur með fjölskyldunni, ferðalag á óvæntan stað og sagan og samfélagið sett fram í afþreyingarformi. Skólavarðan dekkar frítímann svo engum þarf að leiðast.

Óvæntur áfangastaður

Randonautica
App 

Appið Randonautica gefur notendum tilviljanakennd hnit, eða áfangastað. Notandinn þarf einfaldlega að stilla hversu langt hann vill labba (radíus) og ákveða einhverja tilfinningu fyrir áfangastaðnum áður en hnit eru fengin. Þetta getur verið gleði, gróður, litur, saga eða hvað sem er og hver veit nema appið leiði mann að eyðibýli, hestum á víðavangi, eða gulum vita. Það er að minnsta kosti von á góðu ferðalagi á nýjan stað, eða gamlan stað séðan í nýju ljósi. Sniðug skemmtun fyrir stefnumót eða fjölskyldufjör. 

 

Samtakamáttur og sundrung

Say Nothing
Sjónvarpsþættir 

Mögnuð sönn saga tveggja systra í Belfast á Norður-Írlandi sem spannar áratugi og veitir áhorfandanum öðruvísi innsýn í líf í klofnu samfélagi þar sem átök einkenna hversdaginn. Vel skrifuð, stórkostlega vel leikin og áhrifamikil sería hér á ferð sem snertir á stórum sögulegum atburðum eins og starfsemi IRA, herskárra kaþólikka í Belfast á áttunda áratugnum, sprengjuárás þeirra á Old Bailey sakamáladómstól Lundúna og stofnun stjórnmálaflokksins Sinn Fein. Helst varpa þættirnir þó ljósi á mannlegt eðli.

 

Hver er fljótastur að koma stöfum í orð?

Bananagrams 
Spil 

Bananagrams er stórskemmtilegt einfalt spil alla fjölskylduna, frá sjö ára og upp. Markmiðið er að verða fyrstur til að klára að koma stöfum fyrir í orðatöflu. Spilið er bæði einfalt og handhægt og fáanlegt á íslensku. 2-8 geta spilað í einu og hver leikur tekur um 15-30 mínútur.

 

Þráðurinn sem aldrei endar

Endless Thread  
Hlaðvarp 

Allt frá léttum þáttum um tilurð einstakra „memes“ yfir í þyngri umfjöllunarefni um persónuupplýsingavernd, sorg og gervigreind – Endless Thread fer yfir allt sem gerist í netheimum í rúmlega 370 áhugaverðum og vel framleiddum hlaðvarpsþáttum. Hlaðvarpsstjórnendur setja netið í samhengi við lífið og samfélagið hverju sinni. Þá er skemmst frá því að segja að blaðamenn Skólavörðunnar lærðu um Randonautica appið og raunverulegar tilviljanir hér.

 

Bók inn um lúguna

Bókaklúbbur 

Fyrir lestrarhesta er hægt að mæla með bókaáskriftarklúbbum. Hér á landi býður til dæmis Angústúra bækur í áskrift og úti í heimi er að finna fjöldann allan af mismunandi áskriftarleiðum sem senda til Íslands, til dæmis á vef CrateJoy og Hello Subscription. Allt frá barna- og ungmennaáskriftum og yfir í klassískar bækur, fantasíur, myndasögur, uppskriftabækur og glæpasögur – nýjar, notaðar, rafrænar- eða hljóðbækur. Hægt er að finna eitthvað fyrir alla, jafnvel áskriftir sem koma með góðgæti til að auka á lestraránægjuna.

 

Innsýn í veröld ungmenna

Adolescence
Sjónvarpsþættir 

Þetta eru vafalítið áhugaverðustu sjónvarpsþættirnir á Netflix þessa stundina. Þeir fjalla með gagnrýnum hætti um veröld ungmenna sem stunda sitt félagslíf á samfélagsmiðlum og sýna það hvernig eitruð menning getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir félagsþroska fólks. Hver þáttur er framreiddur í einni óklipptri kvikmyndatöku. Grípandi frásagnarstíllinn setur áhorfandann í miðja atburðarásina og frábært handrit og leikur ríghalda allan tímann.