Skólavarðan mælir með gleði, grúski og galdri

Fréttir|3. febrúar 2026
Skólavarðan

Skólavarðan mælir með ýmsu sem hægt er að taka sér fyrir hendur á köldum vetrardögum í jólafríinu, hvort sem það er upp á eigin spýtur eða í samveru.

 

Að njóta sigranna

Lífsviðhorf 

Okkur hættir til að einblína á það sem vinnst ekki og líta fram hjá vörðum sem vinnast á leið að stóru takmarki.

Rannsóknir sýna þó að það að fagna sem oftast, bæði stórum sem smáum áföngum, hefur áhrif á umbunarkerfi heilans, getur aukið ánægju, sköpunargleði og metnað og þar með líkurnar á frekari framförum.

Ekki gleyma að klappa þér á bakið, skála við vin eða tjalda öllu til við næsta sigur.

 

Bara bada bastu

Gufubað

Finnarnir vita hvað þeir syngja, bókstaflega. Skólavarðan mælir með gufubaði, ekki síst á köldum vetrardögum. Kostirnir eru margfaldir; Betri svefn, slökun og streitulosun, húðhreinsun og aukið blóðflæði. Svo ekki sé minnst á gæðastund, hvað þá ef hún er í góðum félagsskap.

All bekymber försvinder strax, eins og sænsk-finnsku Júróvísjónfararnir segja.

 

Pips

Netleikur

Pips er nýlegur leikur frá New York Times (NYT) sem hægt er að spila í appi eða á vef útgefandans. Leikurinn, sem býður upp á þrjú erfiðleikastig, gengur út á að koma öllum dómínókubbunum á réttan stað svo dæmið gangi upp.

Stutt og skemmtileg heilaleikfimi hér á ferð frá NYT, sem hefur boðið upp á góðar gátur og leiki frá 1942.

 

Konungssinnar í Kísildal

Hlaðvarp

Í þáttaröðinni Konungssinnar í Kísildal fjalla þau Kristján Guðmundsson og Lóa Björk Björnsdóttir, ritstjórar Lestarinnar á Rás 1, um hugmyndirnar og stefnurnar sem liggja að baki stormasamri stjórnartíð Donalds Trump Bandaríkjaforseta og hugsuðina á bak við þær, konungssinnana í Kísildal.

Þar eru tæknimógúlar, frumkvöðlar og auðjöfrar sem lengi hafa talið þjóðina þurfa snjallan forstjóra til að stýra landinu eins og sprotafyrirtæki, eins konar kóng í konungsdæmi, og sjá sér nú leik á borði.

Hægt er að hlusta í öllum helstu hlaðvarpssveitum og á Rúv.

 

Tímarit.is

Vefsíða

Viltu vita hvort forfeður þínir skrifuðu í blöðin? Hvenær húsið þitt var byggt og hvort það sé reimt í því? Hvernig fyrstu vörumerkin litu út? Hvað var efst á baugi þegar þú fæddist?

Skólavarðan mælir með garfi í víðfeðmu safni Tímarit.is, sem hefur að geyma tæplega sjö milljónir skannaðra blaðsíðna af útgefnum blöðum og tímaritum, sem ná aftur til sautjándu aldar – og alltaf bætist í safnið. Forvitnir geta sleppt ímyndunaraflinu lausu og drepið hvern klukkutímann á fætur öðrum.

 

Að spila á spil

Spil

Við mælum því að setjast að spilum, hvort sem það er með öðrum í kana, ólsen-ólsen, rommí eða vist eða upp á eigin spýtur í kapal, að byggja spilaborg eða læra nýjan spilagaldur. Auðvelt er að finna reglur og nýja leiki til að prófa á netinu.

Að spila á hefðbundin spil gefur færi á að bæta minni og rökhugsun og jafnvel draga úr streitu - og ekki síst gefur það smá hlé frá snjalltækjaspili og -áreiti.

 

 

Lesa Skólavörðuna