Skólavarðan mælir með...

Fréttir|23. desember 2022

Í skammdeginu felst tilvalið tækifæri til að rækta tengslin við sjálfan sig og njóta einverunnar. Til dæmis með því að grípa í eftirtaldar hugmyndir Skólavörðunnar eða ráða krossgátu blaðsins.

Laufey

Tónlist


Ljúfir og hlýlegir tónar hinnar ungu og einstaklega hæfileikaríku tónlistarkonu Laufeyjar henta einstaklega vel í skammdeginu. Laufey semur og spilar gullfallega tónlist og syngur um ástina og lífið. Tónlistinni lýsir hún sem blöndu af jazz- og svefnherbergispoppi, innblásinni af meðal annars Ellu Fitzgerald og Billie Holiday.

I want a love like I've seen in the movies, that‘s why I‘ll never fall in love


...

Mors afskedsbrev

Hlaðvarp


Í hlaðvarpsseríunni Mors afskedsbrev leitast danski blaðamaðurinn Adrian Hughes við að gera upp fortíðina með því að rekja ríkmannlegt, dularfullt, glæst og tragískt lífshlaup móður sinnar. Hún skildi eftir sig hatrammt kveðjubréf sem hún skrifaði til sona sinna fimm þegar hún lést árið 2022, aðeins sextíu og sjö ára að aldri. Hjónaband með vændiskonu, upplognar þunganir, framhjáhald með borgarstjóra, leynilegar ættleiðingar, íslenska sendiráðið og skyndilegt dauðsfall eru með fjölskrúðugum vendingum í flókinni fjölskyldusögu Hughes.

Ég get ekki sagt að þú hafir verið mér góður sonur. Ég vona að þín börn snúi ekki við þér bakinu á sama máta og þú gerðir við mig.


...

Justine's table

Samfélagsmiðlar

Justine ber á borð hverja dýrindis máltíðina á fætur annarri með ómótstæðilegum drykkjum, fyrir fylgjendur samfélagsmiðlareikningsins hennar @Justines.table, hvort sem er á Instagram eða TikTok. Af reikningnum má ráða að hin dularfulla Justine, sem býr, starfar og eldar í New York, hafi smekk fyrir ítalskri matargerð, náttúruvíni og fyrsta flokks fersku hráefni. Það er upplagt að leita til hennar eftir uppskrift eða innblæstri á kósíkvöldi.

...

Killing Commendatore eftir Haruki Muarakami

Bók


Haruki Murakami fjallar um bæði hið hversdagslega og hið dulúðlega þannig að hvort tveggja er jafn áhugavert og grípandi.

Í bókinni Killing Commendatore fjallar Murakami um nýfráskilinn málara á fertugsaldri sem flyst til fjalla og kemur sér fyrir í sveitasetri frægs listamannsþar sem hver annar tilbreytingarlaus dagurinn á eftir öðrum þýtur hjá. Eða þar til hann uppgötvar dularfullt málverk á háalofti sveitasetursins og mörkin á milli hins raunverulega og óraunverulega mást út í sögu þar sem reynir á ást og einmanaleika, list og stríð.

Á morgun er á morgun. Einmitt núna höfum við bara daginn í dag.

...

Homecoming

Leikið hlaðvarp


Fyrir þau sem eru að leita að leiknu efni er Homecoming framúrskarandi hlaðvarpssería sem skartar heimsþekktum leikurum á borð við Catherine Keener, Amy Sedaris, David Cross og David Schwimmer (eða Ross úr Friends), sem öll fara með stórleik í seríunni. Höfundarnir, Eli Horowitz og Micah Bloomberg, vildu skapa „kvikmynd fyrir eyrun“ og það er óhætt að segja að það hafi tekist með spennutryllinum Homecoming sem rígheldur manni við efnið, bæði í seríu eitt og tvö. Í kjölfarið var gerð sjónvarpssería eftir þáttunum með Juliu Roberts í aðalhlutverki.


...

Magnolia Journal

Tímarit


Það er fátt huggulegra í myrkrinu en að týna sér í góðu tímariti. Í Magnolia Journal, sem bandaríski innanhúshönnuðurinn, matgæðingurinn og athafnakonan Joanna Gaines gefur út, er að finna pistla, viðtöl og greinar um allt er viðkemur heimilinu, fjölskyldunni, lífinu og vellíðan. Umfjallanirnar hafa flestar þann tilgang að hvetja lesandann til að fjölga dýrmætum fjölskyldu- og vinastundum, svo sem með góðum hugmyndum að samverustundum, uppskriftum og öðrum ráðum.

Það er í okkar höndum að velja ánægju og þakklæti núna og hætta að ímynda okkur að allt þurfi að vera fullkomið áður en við verðum hamingjusöm.