Skólavarðan komin út

Fréttir|27. apríl 2015

Skólavarðan, tímarit Kennarasambands Íslands, er komin út í rafrænni útgáfu. Skólavarðan er aðgengileg í smáforriti fyrir Apple og Android-stýrikerfi. 

Skólavörðuna má líka lesa með þægilegum hætti á pdf-formati eða í flettiforritinu ISSUU.

Þeir sem vilja lesa blaðið á netinu:

Meðal efnis í Skólavörðunni að þessu sinni:

VIRÐING AÐ VERÐLEIKUM

Gunnar Steinn Pálsson almannatengill segir mikilvægt fyrir kennara að hefja markvissa vinnu við að bæta ímynd sína. Kennarar eru í mikilvægasta starfi í heimi og eiga að njóta virðingar að verðleikum, segir Gunnar Steinn en hann ávarpaði ársfund Kennarasambandsins fyrr í mánuðinum.

ERU DANSKIR HÁSKÓLAR AÐ BREYTAST Í MENNTASKÓLA?

Borgþór Arngrímsson reifar umræðuna um menntamál í Danmörku um þessar mundir. Rætt hefur verið um að setja lágmarkskröfur inn í menntaskólanna og samræma stúdentsprófið. Mjög skiptar skoðanir eru um þessi atriði. Þá er aðsókn í iðnnám langt undir væntingum í Danmörku.

HUGSJÓNAFÓLK Í MONTERREY
Kristín Dýrfjörð, dósent og leikskólakennari við Háskólann á Akureyri, segir frá heimsókn til CENDI-samtakanna í Monterrey í Mexíkó nýverið. CENDI-samtökin reka fjölda leikskóla auk þess að annast heilsugæslu og mæðravernd í fátækustu hverfum Monterrey. Skólastarfið er rekið áfram af einstökum metnaði.

RATLEIKUR UM HEIMINN

Samskiptaforritið Skype býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika. Einn þeirra er MysterySkype sem María Hrönn Valberg, skólastjóri í Grunnskóla Önundarfjarðar, hefur reynslu af. Um er að ræða leik þar sem nemendur tengja sig við nemendur á ótilgreindum stað úti í heimi. Leikurinn gengur út á að komast að hvar hinn bekkurinn er staddur.

DAGUR Í LÍFI

Fylgt er með Guðrúnu Sólveigu, leikskólastjóra á Rauðhóli í Norðingaholti, við líf og störf í einn dag. Guðrún Sólveig kemur víða við og vinnudagurinn er eins og svo oft annasamur með afbrigðum og í mörg horn að líta. Að loknum vinnudegi slakar Guðrún Sólveig á í hesthúsinu.

MIKILVÆGT AÐ TRYGGJA KYNJAFRÆÐINNI SESS

Um 250 kynjafræðinemar úr sjö framhaldsskólum komu saman á málþingi fyrr í mánuðinum til þess að ræða samskipti kynjanna frá ýmsum hliðum. Málstofur voru fjölbreyttar og líflegar umræður sköpuðust. Kynjafræðin er námsgrein sem nýtur sívaxandi vinsælda í framhaldsskólum landsins.