Skólavarðan er komin út

Fréttir|23. nóvember 2026
Skólavarðan heimsótti leikskólann Drafnarstein og fékk að kynnast starfinu þar.

Fjölbreytt efni um kjaramál, fagleg málefni kennarastarfsins og fleira

Áhugaverð viðtöl, fræðandi greinar, fréttir og fastir liðir fylla síður haustblaðs Skólavörðunnar sem er á leið í alla skóla landsins. Hægt er að glugga í netútgáfuna nú þegar og greinar birtast ein af annarri á vefnum næstu vikur.

Rætt er við Áslaugu Sólbráð Ásmundsdóttur, kennara á starfsbraut Tækniskólans í Hafnarfirði, um starfsemi „framtíðarstofunnar“ sem er hönnunar- og hátækniverkstæði við skólann sem meðal annars hýsir Fab-Lab smiðju. Áslaug segir starfsemina valdeflandi fyrir nemendur og geti aukið möguleika þeirra á því að komast inn á atvinnumarkað.

Arnbjörg Stefánsdóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands, segir frá sínu fyrsta ári í starfi fyrir félagið og lítur yfir farinn veg á löngum ferli sem skólastjóri. „Ég hef alla tíð skipt mér af öllu, líklega einhverju líka sem ég hef ekki þurft að skipta mér af, en samt gert,“ segir Arnbjörg sem einnig var á persónulegu nótunum.

Armbjörg Stefánsdóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands, er í vitðtali í blaðinu.

Svava Jónsdóttir ræðir við tónlistarhjónin Selvadore Rähni og Tuuli Rähni sem fara fyrir blómlegu starfi í Tónlistarskóla Bolungarvíkur. Selvadore og Tuuli eru bæði sprenglærðir tónlistarmenn og nýta fríin sín gjarnan til þess að koma fram á tónleikum víðs vegar um heiminn.

Skólavörðufólk kíkti í heimsókn á leikskólann Drafnarstein við Seljaveg, sem er annar tveggja elstu starfandi leikskóla landsins. Þjóðsögur og ævintýri leika stórt hlut­verk á Drafnarsteini. „Við vinnum árstíðabundið og tökum eina sögu fyrir eða jafnvel bara vísu. Sagan eða vísan snertir þannig allt okkar starf í nokkra mánuði,“ segir Halldóra Guðmundsdóttir, sem hefur starfað við skólann í 27 ár og þar af verið leikskólastjóri síðan 2018.

Fjallað er um samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ um vinnustaðamenningu í skólum. Markmið þess var að hvetja stjórnendur og starfsfólk í leik- og grunnskólum til að efla heilbrigða vinnustaðamenningu og styðja þannig við vellíðan starfsfólks.

Níunda þing KÍ, nýjar eignir Orlofssjóðs, erlent samstarf og skilaboð frá Rökvís ásamt fleiru spennandi og fræðandi efni. Þá eru fastir liðir eins og Félaginn, Hver er maðurinn, Skólavarðan mælir með og Einu sinni var að sjálfsögðu á sínum stað, ásamt krossgátunni góðu.