Skólastofnun ekki verksmiðja

Fulltrúar framhaldsskólans fóru yfir stóru málin við Rauða borðið í gær. Anton Már Gylfason, formaður FS, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, Ingibjörg Karlsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu FF og Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi voru gestir Gunnars Smára Egilssonar.
Í tilefni af herferð Kennarasambandsins - Fjárfestum í kennurum - verða skólamálin rædd við Rauða borðið út vikuna. Leikskólinn hóf leika á mánudaginn, framhaldsskólinn fór í loftið á þriðjudaginn, grunnskólinn er svo næstur á dagskrá í kvöld og tónlistarskólinn slær svo botninn í á fimmtudaginn.
Í þætti gærdagsins var kafað í stöðu framhaldsskólans og helstu áskoranir kerfisins, eins og kennaraskortinn, skort á fjármagni og aldurssamsetningu kennarastéttarinnar. Viðmælendur voru Anton Már Gylfason, formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara (FF), Ingibjörg Karlsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu FF og Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi voru gestir Gunnars Smára Egilssonar.
Fjárfestum í farsæld til framtíðar
Við upphaf samtalsins var komið inn á ýmsa styrkleika framhaldsskólastigsins eins og hversu fjölbreytt námsval stendur nemendum til boða við lok grunnskóla, hversu auðvelt nemendur eiga í raun með að færa sig milli námsbrauta eða skóla og að sinna náminu á eigin hraða. Námsmatsaðferðir séu einnig orðnar mun fjölbreyttari og miðist meira en áður fyrr við þá styrkleika sem hver nemandi býr yfir.
Talið barst þá að því sem betur mætti fara og var það í upphafi rætt út frá eftirfarandi tveimur myndum sem formaður Félags framhaldsskólakennara hafði haft með sér. Sú fyrri sýnir hlutfall 39 ára og yngri við kennslu án kennsluréttinda í framhaldsskólum samanborið við heildarfjölda við kennslu í sama aldurshópi. Myndin sýnir rækilega hvernig við erum að týna unga fólkinu úr kennslu og hversu ógurlega hlutfall þeirra sem ekki hafa tilskilin kennsluréttindi hækkar, segir formaðurinn.

Síðari myndin sýnir hlutfall af vergri landsframleiðslu til framhaldsskólastigsins frá 1998 til 2022. Þar má sjá stöðugan niðurskurð í yfir tvo áratugi sem sannarlega er farinn að bíta, segir Guðjón Hreinn.

„Ef það er alltaf að vera að skera niður og minnka kostnað og annað þá þurfum við bara að hlaupa hraðar, en það eru takmörk fyrir því,“ sagði Sandra Hlín, aðspurð um hvað gerist við skólastofnun sem býr við langvarandi kröfu um niðurskurð. Einnig geti orðið erfiðara að fá fólk, menntað fólk, í lausar stöður ef starfsumhverfið er ekki gott.
Ingibjörg kom inn á hópastærðir og fjölda kennara og sagði að reiknifræðilega væri hagkvæmara fyrir stjórnendur að vera með færri kennara og stærri hopa heldur en að fjölga kennurum, sem sé ekki gott. „Það hefur áhrif á gæði kennslu sem fer fram í skólastofunni þegar kennari þarf að sinna 28 til 30 nemendum í staðin fyrir 23 eða 20 eða eitthvað slíkt. Þannig þarna er verið að neyða skólastjórnendur til að taka ákvarðanir sem eru fjárhagslegar en ekki kennslufræðilega- eða uppeldisfræðilega uppbyggilegar.“
„Við erum ekki verksmiðjur. Þetta snýst um nemendur í skólanum, að við önnumst þá og menntum þá og styðjum eftir þeirra væntingum og þörfum. Þannig það að búa til einhverskonar vélar úr þessum skólum, hagkvæmar rekstrareiningar, þetta er bara ekki í takti við menntastefnuna. Alls ekki,“ bætti þá Guðjón Hreinn við.
„Auðvitað skilur maður það að þetta kostar peninga og þeir verða að vera til, en við þurfum einhvern veginn sem samfélag að ná að hugsa þetta til aðeins lengri tíma heldur en bara akkúrat þessa fjárlagaárs,“ sagði Anton Már. „Ef við hugsum þetta frá ári til árs og erum alltaf með peningalega mælikvarðann uppi við þá dregur smám saman úr þrótti í skólanum sjálfum og þeir missa sín tækifæri til að hugsa til framtíðar. Ef skóli missir sjónar á framtíðinni þá erum við að missa sjónar um leið á meginmarkmiði með að hafa öflugt og gott skólakerfi sem er að búa okkur til hagsæld og farsæld til framtíðar.“
„Til þess að geta byggt okkur farsæld til framtíðar þá þurfum við núna að taka ákvarðanir sem að koma til með að kosta peninga og það er það sem er kjarni málsins.“
Grunnskólinn næstur á dagskrá
Ekki missa af Rauða borðinu í kvöld þegar grunnskólafulltrúar mæta til leiks. Þorsteinn Sæberg, formaður Skólastjórafélags Íslands, Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, Gróa Axelsdóttir skólastjóri og Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, verða þá gestir Gunnars Smára.