Skólastjórnendur segja að hækka þurfi kennaralaunin umtalsvert

„Sofandaháttur ráðamanna ber ekki vott um mikinn skilning eða vilja til að efla skólastarf ...“
Skólastjórnendur á Suðurnesjum lýsa þungum áhyggjum af því að ekki skuli enn búið að ganga frá kjarasamningi við grunnskólakennara. „Verði það ekki gert fljótlega mun það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir skólastarf,“ segir í ályktun skólastjórnendanna.
Í ályktuninni segir jafnframt að sá stóri vandi sem steðji að skólastarfinu muni vaxa og „sofandaháttur ráðamanna ber ekki vott um mikinn skilning eða vilja til að efla skólastarf, ekki einu sinni að halda í horfinu“.
Þá segir að stöðugt verði algengara að starfandi kennarar leiti í önnur störf og nú þegar starfi um helmingur menntaðra kennara annars staðar en í skólum. „Núverandi vandi verður ekki leystur með tilfærslum á vinnutíma eða vinnutilhögun. Til að leysa þann vanda sem steðjar að skólastarfinu þurfa kennaralaun að hækka umtalsvert svo að kennarastarfið verði launalega samkeppnishæft og spornað verði gegn verulegum kennaraskorti," segir í ályktuninni.
Undir ályktunina skrifa skólastjórarnir Ásgerður Þorgeirsdóttir, Njarðvíkurskóla, Bryndís Guðmundsdóttir, Myllubakkaskóla, Eðvarð Þór Eðvarðsson, Holtaskóla, Haraldur Axel Einarsson, Heiðarskóla, Sigubjörg Róbertsdóttir, Akurskóla, Anna Sigríður Guðmundsdóttir, Háaleitisskóla, Hólmfríður Árnadóttir, Grunnskólanum í Sandgerði, og Jóhann Geirdal Gíslason, Gerðaskóla.