Skólastjórnendur samþykktu nýja kjarasamning
Fréttir|13. nóvember 2015
Meirihluti félagsmanna í Skólastjórafélagi Íslands hefur samþykkt nýgerðan kjarasamning félagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samningurinn var undirritaður í húsakynnum Ríkissáttasemjara að kvöldi 4. nóvember síðastliðinn.
Allsherjaratkvæðagreiðslu um samninginn lauk klukkan 14 í dag.
Úrslit voru sem hér segir:
Á kjörskrá voru 511
Atkvæði greiddu 354 eða 69,28%
Já sögðu 249 eða 70,34%
Nei sögðu 87 eða 24,58%
Auðir seðlar voru 18 eða 5,08%
Gildistími hins nýja kjarasamnings er frá 1. júní 2015 til 31. mars 2019.