Skólastjórnendur samþykkja nýjan kjarasamning

Fréttir|19. júní 2014

Félagsmenn í Skólastjórafélagi Íslands hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samningurinn var undirritaður í húsakynnum Ríkissáttasemjara 10. júní síðastliðinn.

Allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna SÍ lauk klukkan 13 í dag.

Úrslit atkvæðagreiðslunnar voru sem hér segir:

  • Á kjörskrá voru: 500
  • Atkvæði greiddu: 332 eða 66,40%
  • Já sögðu: 201 eða 60,54%
  • Nei sögðu: 118 eða 35,54
  • Auðir: 13 eða 3,92%

Kjarasamningur Skólastjórafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga gildir til eins árs. Farið verður í tímasetta aðgerðaáætlun þar sem unnið verður að nýju launamyndunarkerfi skólastjórnenda.