Skólastjórnendur ræddu gæðastarf í grunnskólum

Það var þétt setið í Íþróttamiðstöðinni Garði þegar meira en 300 félagsmenn Skólastjórafélags Íslands komu saman á árlegri námstefnu félagsins á föstudag. Metfjöldi var skráður og dagskráin var áhugaverð og spennandi.
Ríflega þrjú hundruð skólastjórnendur komu saman á árlegri Námstefnu Skólastjórafélagsins í morgun. Námstefnan, sem er sú fjölmennasta frá upphafi, fór fram í Íþróttamiðstöðinni Garði.
Dagskrá námstefnunnar, sem fór fram á föstudag og laugardag, var afar áhugaverð að venju en yfirskriftin þetta árið var Fjölbreytt gæðastarf í skólum – ábyrgð og eftirfylgd skólastjórnenda.
Aðalfyrirlesari námstefnunnar var dr. Steve Munby en hann er sjálfstætt starfandi ráðgjafi um forystu og kerfisbætur. Munby býr á Bretlandi og vinnur með stjórnvöldum og skólafólki um allan heim. Þá hefur Munby stýrt ARC leiðtogafundunum þar sem fulltrúar hinna ýmsu menntakerfa heims hafa skuldbundið sig til að stuðla að jöfnuði, velferð og félagslegu réttlæti. Munby hélt tvo fyrirlestra; þann fyrri um ófullkomna forystu og þannig seinni um hugarfar hins ófullkomna leiðtoga.

Doktor Steve Munby var aðalfyrirlesari námstefnunnar. Hann er afar virtur í skólasamfélaginu á alþjóðavísu og hefur sent frá sér nokkrar fræðibækur um hlutverk leiðtogans.
Gæði kennslu rannsökuð
Þá fluttu Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor á Menntavísindasviði HÍ, og Jóhann Örn Sigurjónsson, nýdoktor við Háskólann á Akureyri, erindi um Quint; rannsókn á gæðum kennslu á unglingastigi á Norðurlöndunum. Niðurstöður rannsóknarinnar verða kynntar með formlegum hætti í byrjun nóvember.
Dr. Marte Blikstad-Balas, prófessor í menntunarfræðum við Háskólann í Osló og einn af stjórnendum norræna öndvegissetursins Quint um gæði kennslu á Norðurlöndum, stýrði málstofu á laugardag um hvernig styðja megi við kennara í þeim tilgangi að þeir nái meiri árangri í kennslunni.
Námstefnan var sem fyrr fjölmenn, skólastjórnendur komu hvaðanæva af landinu, og var samdóma álit þátttakenda að hún hefði tekist vel í alla staði.