Skólastjórnendur ósáttir við breytingar í skólamálum

Fréttir|29. febrúar 2024

Skólastjórnendur í Fjarðabyggð óttast að verði af fyrirhugðum breytingum í skólamálum í sveitarfélaginu þá muni skólaþjónusta skerðast og vegið verði að lögvörðum réttindum barna til náms.

Skólastjórnendur grunnskóla Fjarðabyggðar sendu frá sér eftirfarandi tilkynningu að loknum fundi í dag. 

 

Tilkynningin hljóðar svo: 

Skólastjórnendur grunnskóla í Fjarðabyggð eru ósáttir við fyrirhugaðar breytingar á skólamálum í Fjarðabyggð og þær rangfærslur sem fram hafa komið í kjölfarið.

Ekkert samráð var haft við skólastjórnendur eða aðra aðila skólasamfélagsins um þær breytingar sem um ræðir og engar upplýsingar komu fram um ofangreindar breytingar fyrr en við birtingu fundargerðar bæjarstjórnar að kvöldi 27. febrúar 2024.

Fulltrúa skólastjórnenda grunnskóla í samráðshópi var meinað að eiga samráð við eða upplýsa aðra skólastjórnendur í sveitarfélaginu um starf hópsins. Tillögur fulltrúa skólastjórnenda voru virtar að vettugi og ekki tekið mark á þeim.

Skólastjórnendur óttast að verði fyrirhugaðar breytingar að veruleika þá muni skólaþjónusta við grunnskólabörn skerðast og vegið verði að lögvörðum réttindum þeirra til náms.

Lög um farsæld barna leggja ýmsar skyldur á aðila skólasamfélagsins. Skólastjórnendur óttast að ekki náist að uppfylla þær að fullu verði ofangreindar breytingar að veruleika.

Þá hefur Kennarasamband Íslands bent á að hugsanlega brjóti tillögur bæjarstjórnar í bága við lög um grunnskóla sem og kjarasamninga Kennarasambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga.

 

Skólastjórnendur grunnskólanna í Fjarðabyggð komu saman á fundi á Reyðarfirði í dag ásamt formanni Skólastjórafélags Íslands og lögmanni Kennarasambands Íslands.