Skólastjórnendur íhuga uppsagnir
Skólastjórnendur krefjast þess að Samband íslenskra sveitarfélaga ljúki nú þegar kjarasamningi við Skólastjórafélag Íslands svo komið verði í veg fyrir fjöldaflótta úr stéttinni. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á ársfundi félagsins sem haldinn var í Reykjanesbæ laugardaginn 10. október. Ályktunin í heild er sem hér segir:
"Ársfundur Skólastjórafélags Íslands haldinn í Reykjanesbæ laugardaginn 10. október 2015 lýsir þungum áhyggjum vegna framkominna upplýsinga frá einstökum félagsmönnum um að vænta megi uppsagna frá þeim vegna þess skilningsleysis sem er hjá viðsemjendum félagsins. Á sama tíma og samninganefnd skólastjórafélagsins mætir algjöru skilningleysi sitja skólastjórar, aðstoðarskólastjórar og deildarstjórar uppi með aukin verkefni vegna annara samninga sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gert við önnur stéttafélög s.s. Félag grunnskólakennara.
Nú virðist helsta leið skólastjórnenda til að bæta kjör sín vera að segja upp stöðu sinni og snúa aftur í kennslu. Við þetta tapast óhjákvæmilega mikilvæg reynsla sem erfitt verður að bæta.
Fundurinn krefst þess að Samband íslenskra sveitarfélaga ljúki nú þegar kjarasamningi við Skólastjórafélag Íslands svo komið verði í veg fyrir fjöldaflótta úr stéttinni."