Skólastjórnendum sýnd lítilsvirðing

Fréttir|7. október 2015

Skólastjórnendur á Norðurlandi eystra segja að erfitt sé að horfast í augu við þá lítilsvirðingu sem sveitarstjórnarnmenn sýni starfi skólastjórnenda með því að láta þá starfa samningslausa. Þetta kemur fram í ályktun Félags skólastjórnenda á Norðurlandi eystra sem samþykkt var á haustfundi félagsins á Akureyri 2. október síðastliðinn. Ályktunin er sem hér segir:

„Haustfundur Félags skólastjórnenda á Norðurlandi eystra leggur áherslu á staða í samningamálum SÍ og SNS er algerlega óviðunandi.

Skólastjórnendur eru undir miklu álagi og þurfa að mæta sífellt auknum kröfum eftir miklar breytingar á starfsumhverfi þeirra síðasta áratug. Þessar breytingar hafa ekki verið virtar til launa og skólastjórnendur eru langt fyrir neðan stjórnendur á almennum markaði. Launaþróun síðustu missera hefur leitt til þess að í sumum tilvikum eru undirmenn hærra launaðir en skólastjórnendur. Þessi staða er auðvitað óviðunandi.

Erfitt er fyrir skólastjórnendur að horfast í augu við þá lítilsvirðingu sem sveitarstjórnarmenn sýna starfi skólastjórnenda með því að láta þá starfa samningalausa“.