Skólastjórar og skólameistarar ræddu samræmdan vitnisburð

Fréttir|20. febrúar 2017

Um eitt hundrað manns sóttu samræðufund Skólastjórafélags Íslands (SÍ), Skólameistara Íslands (SMÍ) og Menntamálastofnunar á Grand hóteli Reykjavík í dag.

Svanhildur María Ólafsdóttir, formaður SÍ, og Steinn Jóhannsson, formaður SMÍ, settu fundinn og lýstu ánægju með hversu vel fundurinn var sóttur. Þau sögðu afar jákvætt að stjórnendur skólastiganna tveggja hittust og ræddu málin með þessum hætti. 

Yfirskrift fundarins var Samræmdur vitnisburður við lok grunnskóla og var velt upp spurningum á borð við: hvernig tókst til vorið 2016?, hvað hefði betur mátt fara? Þá flutti Sigurgrímur Skúlason, frá Menntamálastofnun, erindi sem hann kallaði Hvernig kallast samræmd próf á við námsmat? Frummælendur voru Brynhildur Sigurðardóttir, skólastjóri í Garðaskóla, og Benedikt Barðason, aðstoðarskólameistari við Verkmenntaskólann á Akureyri. Þá tók við hópastarf og umræður. 

Fundurinn var í beinni útsendingu á vef Netsamfélagsins og þar er hægt að horfa á upptöku frá fundinum. 

Myndalbúm frá fundinum er á Facebook-síðu Skólastjórafélagsins.