Skólastjórafélag Íslands undirritar nýjan kjarasamning

Fréttir|4. nóvember 2015

Samninganefndir Skólastjórafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir nýjan kjarasamning í húsnæði Ríkissáttasemjara á tíunda tímanum í kvöld eftir langt samningaferli en fyrri samningur þessara aðila rann út 31. maí síðastliðinn. Gildistími samningsins er frá 1.júní 2015- 31. mars 2019, verði hann samþykktur. Samningurinn verður kynntur félagsmönnum Skólastjórafélags Íslands á næstu dögum en atkvæðagreiðsla um hann fer fram dagana 9. til 13. nóvember.

Svanhildur María Ólafsdóttir, formaður SÍ hvetur félagsmenn til að kynna sér efni samingsins þegar það liggur fyrir. Gert er ráð fyrir að kynningarefni verði sett á vef mánudaginn 9 nóvember.