Skólastarf útfært í samræmi við tilmæli ráðherra

Fréttir|16. mars 2020

Starfsdagur er víðast hvar í grunnskólum og leikskólum í dag þar sem starfsfólk skólanna metur hvernig skólastarfi verði háttað á næstunni. Framhaldsskólar eru lokaðir nemendum. Starfsdagar eru eftir atvikum í tónlistarskólum í dag.

Takmarkanir á skólastarfi tóku gildi á miðnætti og er það í samræmi við auglýsingu heilbrigðisráðherra. 

Framhaldsskólar verða lokaðir nemendum sem og háskólar. Starfsdagur er víðast hvar í leikskólum og grunnskólum landsins í dag – og eftir atvikum í tónlistarskólum. Starfsfólk skólanna nýtir daginn til að útfæra skólastarf í samræmi við tilmæli sóttvarnalæknis. 

Trúnaðarmenn KÍ í skólunum munu halda utan um álitamál sem kunna að koma upp – og koma þeim til KÍ. 

 

Sameiginleg yfirlýsing

„Almannavarnir standa frammi fyrir nýjum veruleika á hverjum degi. Brýnt er að tilmælum yfirvalda, sem miða að því að tryggja öryggi borgaranna og verja innviði íslensks samfélags, sé fylgt og að ákvarðanataka og framkvæmd séu eins vandaðar og kostur er."

Þannig hefst sameiginleg yfirlýsing sem send var út að loknum fundi sóttvarnalæknis, fulltrúa almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar, sem fram fór um helgina. 

Yfirlýsingin í heild.

 

EPLIÐ – fréttabréf KÍ sem var sent til allra félagsmanna í gær.