Skólastarf eftir páska

Fréttir|31. mars 2021

Staðnám hefst að nýju eft­ir páskafrí með ákveðnum tak­mörk­un­um.

Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að staðnám geti hafist að nýju á öllum skólastigum eftir páskafrí með ákveðnum takmörkunum, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi var unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Gildistími reglugerðarinnar er frá 1. apríl til og með 15. apríl.

Reglur fyrir hvert skólastig eru eftirfarandi:

 

Leikskólar

Engin fjölda- eða nálægðartakmörkun gildir um börn á leikskólaaldri.
Hámarksfjöldi fullorðinna er 20 manns í rými, en starfsmenn mega fara milli rýma.
Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli en nota grímu ella.
Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til og skulu þá nota andlitsgrímu.


Grunnskólar

Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkun og grímuskyldu.
Hámarksfjöldi starfsmanna er 20 manns í rými og þeir mega fara milli rýma.
Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli og gagnvart nemendum en nota grímu ella.
Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 og blöndun milli hópa innan sama skóla er heimil.


Tónlistarskólar

Halda skal 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Annars skal nota grímur sé þess kostur.
Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 börn á grunnskólaaldri.
Viðburðir eru heimilir fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri með sömu skilyrðum og gildir um skólastarf þeirra.
Einstaklingar fæddir 2004 eða fyrr mega vera að hámarki 20 saman í rými og blöndun er heimil.
Um viðburði fyrir einstaklinga fædda 2004 fer eftir ákvæði um sviðslistir í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.


Framhaldsskólar

Hámarksfjöldi nemenda og starfsmanna í rými er 30.
Halda skal 2 metra nálægðartakmörkun milli nemenda og starfsfólks en nota grímu ella.
Blöndun nemenda milli hópa er heimil og starfsfólk má fara milli rýma.
Um viðburði tengda starfi eða félagslífi í framhaldsskóla fer eftir ákvæði um sviðslistir í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

 

Íþróttir barna á leik- og grunnskólaaldri utan skóla eru óheimilar samkvæmt gildandi reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum.