Skólastarf á tímum COVID-19

Gróa Sigurðardóttir, leikskólakennari í leikskólanum Hofi, segir frá skólastarfinu og þeim áskorunum sem hafa komið upp vegna kórónuveirufaraldursins.
Kennarasamband Íslands hefur látið gera níu myndbönd þar sem fjallað er um skólastarf á tímum COVID-19 veirufaraldursins. Leitað var fanga á öllum skólastigum og tekin viðtöl við kennara, skólastjórnendur og starfs- og námsráðgjafa.
Markmið verkefnisins er að safna heimildum um þennan óvenjulega tíma í sögu skólastarfs hér á landi. Mikið hefur mætt á kennurum, skólastjórnendum og starfsfólki skólanna síðustu tvo mánuði og grípa hefur þurft til margs konar aðgerða til að stuðla að velferð nemenda á öllum skólastigum. Elja og útsjónarsemi skólafólks hefur einkennt störf þess um land allt, ný vinnubrögð hafa víða verið tekin upp og tæknin nýtt til að koma námsefni til skila.
Fyrsta myndbandið birtist í dag en þar lýsir Gróa Sigurðardóttir, deildarstjóri í leikskólanum Hofi, hvernig skólastarf hefur gengið fyrir sig undanfarið. Fjórir starfsmenn leikskólans veiktust af COVID-19 og þurfti að loka leikskólanum í tvær vikur.
Næstu daga munu fleiri myndbönd birtast og hvetjum við félagsmenn til að fylgjast með, horfa á myndböndin og deila þeim til að sýna samfélaginu hversu mikilvæg störf kennara, stjórnenda og starfsfólks skólanna eru nú sem alltaf.