Skólamálin rædd við Rauða borðið

Skólamál eru í brennidepli við Rauða borð Samstöðvarinnar þessa vikuna. Leikskólinn hóf leika í gær með áhugaverðum og skilvirkum umræðum.
Leikskólamálin voru rædd við Rauða borð Samstöðvarinnar í gær. Sveinlaug Sigurðardóttir, varaformaður FL, Haraldur F. Gíslason, formaður FL, Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ og Sigurður Sigurjónsson, formaður FSL, voru gestir Gunnars Smára Egilssonar. Hægt er að horfa á þáttinn hér fyrir neðan.
Í tilefni af herferð Kennarasambandsins - Fjárfestum í kennurum - verða skólamálin rædd við Rauða borðið út vikuna. Leikskólinn hóf leika í gær, framhaldsskólinn ræðir við Gunnar Smára í kvöld, grunnskólinn er svo næstur á dagskrá á miðvikudaginn og tónlistarskólinn slær svo botninn í á fimmtudaginn. Í þætti gærdagsins var meðal annars farið yfir kennaraskortinn og áhrif hans í leikskólanum, vinnuaðstæður og dvalartíma barna í skólanum.
Mikilvægt að tryggja stöðugleika með fjölgun kennara
Sigurður vakti athygli á mikilli starfsmannaveltu í leikskólanum. Kennarar eru um 25% starfsmanna leikskólans. Aðrir eru ófaglærðir, sagði hann. Miðað sé við að eðlileg starfsmannavelta í fyrirtæki sé um 7-10% á ársgrundvelli. Hins vegar er starfsmannavelta í hópi ófaglærðra í leikskóla um 33% á ári og um þrefalt meiri en í hópi kennara.
„Þannig ef þú ert að reka 50 starfsmanna leikskóla þá ertu á hverju einasta ári að skipta út um 12-13 starfsmönnum,“ segir Sigurður. „Ímyndaðu þér áhrifin á börnin,“ bætir Sveinlaug við. Á endanum er kannski eitt lítið barn búið að vera í umsjá sjö mismunandi einstaklinga á einu ári og stundum enn fleiri, segir hún. „Þetta er mikið rót fyrir ung börn.“
Jónína tekur undir og segir starfsmannaveltuna geta haft áhrif til framtíðar. Rannsóknir sýni að þegar börn búi við stöðugleika geti þau myndað sterk og góð tengsl við sína kennara sem hafi áhrif út í lífið. „Þetta hangir allt saman. Börn sem búa við örugg geðtengsl þau hafa betri sjálfsstjórn, þau treysta öðrum betur, þeim líður andlega og líkamlega betur, félagstengsl, samskipti, námsgeta þetta allt verður sterkara hjá þeim."
Sveinlaug bendir á að starfsmannaveltan sé mun minni meðal kennara. „Þess vegna þurfum við að fjölga kennurum af því þannig aukum við öryggi barnanna og stöðugleikann og minnkum starfsmannaveltuna. Þetta hangir allt saman.“
Öll í sama liði
Jónína segir Kennarasambandið kalla eftir umræðu í samfélaginu um stöðuna. „Viljum við ekki öll hafa kennara með börnunum okkar alltaf?“ „Bíddu, við heyrum ennþá þú þarft ekki háskólamenntun til að passa börn í leikskóla og það er 2024,“ segir Haraldur. „Þetta viðhorf, að mínu mati, er náttúrulega ekkert nema bara fordómar fyrir menntunarfræði ungra barna. Það er staðreynd að starfsmannavelta er langminnst á meðal kennara. Háskólamenntun er því ekki vandamálið heldur lausnin.“
„Fjölgun kennara hefur verið einhvern vegin hliðarverkefni og plástrar á kerfið aðalatriðið. Fjölgun kennara þarf að vera aðalatriðið,“ segir Haraldur. „Ég ætla koma með hugmynd. Gerum leikskólann að skylduverkefni sveitarfélaga eins og grunnskólann. Þá þarf ríkið að koma að tekjuöflun hans og skilyrðum þær tekjur við fjölgun kennara.“
„Auðvitað er þetta allt samhangandi. Og við sem samfélag þurfum kannski bara að fara pínu að horfa inn á við og hugsa: Hvað er best fyrir fólkið hérna? Hvað er best fyrir börn og best fyrir fjölskyldur? Því á endanum eru kennararnir og foreldrarnir í sama liðinu. Við viljum á endanum öll það sem er best fyrir börnin okkar,“ segir Sveinlaug.
Framhaldsskólinn næstur á dagskrá
Ekki missa af Rauða borðinu í kvöld þegar framhaldsskólinn mætir til leiks. Anton Már Gylfason, formaður FS, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, Ingibjörg Karlsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu FF og Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi og varamaður í stjórn FF verða þá gestir Gunnars Smára.
