Skólamálaþing KÍ á Alþjóðadegi kennara

Fréttir|20. september 2016

Skólamálaráð Kennarasambands Íslands efnir til Skólamálaþings á Alþjóðadegi kennara, miðvikudaginn 5. október 2016.

Skólamálaráð Kennarasambands Íslands efnir til Skólamálaþings á Alþjóðadegi kennara, miðvikudaginn 5. október 2016. Þingið, sem verður haldið á Hótel Nordica og stendur frá 13 til 16, er ætlað félagsfólki KÍ, aðilum sem tengjast skólastarfi og þeim sem mennta kennara.

Yfirskrift þingsins er „fagleg forysta kennara í menntamálum“. 

Á þinginu verður forysta kennara í skóla- og menntamálum í brennidepli.

Markmiðin með þinginu eru þessi:

  • Að efla samræðu um kennarastarfið og menntun barna og ungmenna
  • Að efla forystu kennara í skóla- og menntamálum
  • Að efla menntun sem leiðarljós jafnræðis og lýðræðis

Aðalfyrirlesari er dr. David Frost, prófessor við Menntavísindastofnun Háskólans í Cambridge, Englandi. Rannsóknir dr. Frost fjalla um margvísleg svið menntafræðilegrar forystu og kennslufræði en að undanförnu hefur hann lagt sérstaka áherslu á faglega forystu kennara. Á síðustu 30 árum hefur hann þróað aðferðir til að styðja við kennara sem breytingaafl í skóla- og menntamálum og þátttakendur í því að skapa og miðla faglegri þekkingu.

Skólamálaþingið verður í beinni útsendingu á netinu, á vefnum netsamfelag.is, og upptaka verður gerð aðgengileg að því loknu. 

Skráning á þingið fer fram hér: 

Nánari upplýsingar um Skólamálaþing Kennarasambands Íslands má finna hér. 

 

DAGSKRÁ (í pdf-formi)

 

{tabulizer:include style[gr.alterora.elemental_2_blue.css] responsive[1] id[tab_zjt2SL4QUk]}

12.30

Mæting og tónlist.

13.00

Setning Skólamálaþings – Þórður Á. Hjaltested, formaður KÍ

 

 

 

 

13.15

„Enchancing teacher professionality through teacher leadership“ – Dr. David Frost, prófessor við Menntavísindastofnun Cambridge-háskóla á Englandi.

 

 

 

 

14.15

Kaffihlé

 

 

 

 

14.40

Stuttar hugleiðingar um efni fyrirlestur út frá íslenskum aðstæðum. – Ingileif Ástvaldsdóttir, skólastjóri Þelamerkurskóla, Eyjafirði, og Örn Arnarson, kennari í Heiðarskóla, Hvalfjarðarsveit. 

 

 

 

 

15.00

Samræður við dr. David Frost. Pallborðsumræður með þátttöku þinggesta.

Þátttakendur í pallborði:

  • dr. David Frost, prófessor við Cambridge-háskóla
  • dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor við Menntavísindasvið HÍ, sem stýrir umræðum og tekur saman í lokin. 
  • dr. Hjördís Þorgeirsdóttir, konrektor Menntaskólans við Sund
  • Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri í leikskólanum Ösp
  • Örygur Benediktsson, tónlistarkennari við Tónlistarskóla Árnesinga.

 

 

 

 

16.00

Þingi slitið – Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ.