Skólamálaþing KÍ 2018

Skólamálaþing Kennarasambands Íslands verður haldið þann 4. október kl. 15 – 17 í Veröld, húsi Vigdísar. Skólamálaþingið er haldið í tengslum við Alþjóðadag kennara sem haldinn er hátíðlegur um heim allan 5. október.
Íslenskan verður þema hins árlega Skólamálaþings KÍ sem verður haldið í Veröld Vigdísar 4. október.
Skólamálaþing Kennarasambands Íslands verður haldið þann 4. október kl. 15 – 17 í Veröld, húsi Vigdísar. Skólamálaþingið er haldið í tengslum við Alþjóðadag kennara sem haldinn er hátíðlegur um heim allan 5. október. Skólamálaráð KÍ hefur veg og vanda af skipulagningu þingsins nú sem fyrri ár.
DAGSKRÁ
Kl. 15:00
Setning. Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ.
Kl. 15:10
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Kl. 15:15
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus og Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor við Íslensku- og menningardeild, kynna fyrstu niðurstöður um yngsta hópinn í rannsókninni Íslenskan í stafrænum heimi.
Kl. 15:45
Jónína Hauksdóttir, leikskólastjóri Naustatjarnar á Akureyri.
Kl. 15:55
Hulda Dögg Proppé, íslenskukennari við Sæmundarskóla.
Kl. 16:05
Guðjón Ragnar Jónasson, íslenskukennari við MR.
Kl. 16:15
Þórarinn Eldjárn, skáld.
Kl. 16:30
Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ.
Kl. 16:35
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Kl. 16:45
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Í lokin verður undirrituð viljayfirlýsing um vitundarvakningu íslenskunnar. Fulltrúar Kennarasambands Íslands, forsætisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Háskóla Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla skrifa undir.
Fyrir málþingið eða frá kl. 14:30 verður boðið upp á léttar veitingar og geta gestir skoðað ýmis námsgögn sem kennd hafa verið í gegnum árin og eru í eigu Menntamálastofnunar.
Skráningu er lokið þar sem fullbókað er á málþingið. Við bendum áhugasömum á að fylgjast með streymi frá þinginu.
Þinginu verður streymt á vef Netsamfélagsins.