Skólamálaþing 2019

Á dagskrá Skólamálaþings þetta árið verða lykilfyrirlesarar þau Huginn Freyr Þorsteinsson, sem fjallar um framtíð kennarastarfsins og fjórðu iðnbyltinguna, og Auður Jónsdóttir rithöfundur. Fulltrúar skólastiganna munu stíga á stokk ásamt nemanda úr framhaldsskóla.
Skólamálaþing KÍ verður haldið 3. október í tilefni Kennaradagsins. Ungir kennarar og framtíð kennarastarfsins er þema þingsins.
Þingið fer fram í Veröld – húsi Vigdísar, frá klukkan 15 til 17 fimmtudaginn 3. október. Fyrir málþingið eða frá kl. 14:30 verður boðið upp á léttar veitingar.
Á dagskrá Skólamálaþings þetta árið verða lykilfyrirlesarar þau Huginn Freyr Þorsteinsson, sem fjallar um framtíð kennarastarfsins og fjórðu iðnbyltinguna, og Auður Jónsdóttir rithöfundur. Fulltrúar skólastiganna munu stíga á stokk ásamt nemanda úr framhaldsskóla.
Aðgangur að Skólamálaþingi er ókeypis en gestir eru beðnir um að skrá sig.
Streymt verður frá þinginu á vef Netsamfélagsins.
Dagskrá
- 15:00 – 15:10 Setning, Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ
- 15:10 – 15:20 Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
- 15:20 – 15:40 Huginn Freyr Þorsteinsson heimspekingur, Framtíð kennarastarfsins og fjórða iðnbyltingin
- 15:40 – 15:50 Sólveig María Árnadóttir, formaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri
- 15:50 – 16:00 Júlíana Tyrfingsdóttir, leikskólastjóri
- 16:00 – 16:10 Hákon Sæberg, grunnskólakennari
- 16:10 – 16:20 Hildur María Arnalds, nemandi í Kvennaskólanum, Raddir nemenda
- 16:20 – 16:30 Jóhann Ingi Benediktsson, tónlistarskólakennari
- 16:30 – 16:45 Auður Jónsdóttir rithöfundur, Kennarar sem kenndu mér drauma
16:45 – 16:55 Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ
Alþjóðadagur kennara
Skólamálaþing er haldið í tengslum við Alþjóðadag kennara, Kennaradaginn, sem haldinn er hátíðlegur um heim allan 5. október. Kennaradaginn ber upp á laugardag þetta árið.
Stofnað var til Alþjóðadags kennara að frumkvæði UNESCO og Alþjóðasamtaka kennara (Education International) árið 1994. Markmiðið með deginum hefur ávallt verið að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem kennarar gegna í heiminum – en líka að efla samtakamátt kennara og huga að hvernig menntun barna verður best háttað í framtíðinni. Myllumerkið er #kennaradagurinn2019.
Myndir frá Skólamálaþingi 2018.