Skólafólk hefur sannað gildi sitt og fagmennsku

Fréttir|14. maí 2020

COVID-19 faraldurinn gjörbreytti skólastarfi á öllum skólastigum. Kennarar og skólastjórnendur stóðu skyndilega frammi fyrir nýjum áskorunum og verkefnum sem þurfti að leysa.

„Staðan sem við erum í mun valda varanlegum breytingum. Þá hefur víða orðið þróun á nokkrum vikum sem annars hefði tekið mörg ár," segir Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands.

Ragnar Þór er viðmælandi í níunda og síðasta myndbandi útgáfusviðs KÍ þar sem fjallað er um skólastarf í skugga COVID-19. 

Ragnar fjallar meðal annars um stöðu viðkvæmra hópa í skólakerfinu. Hann segir það hafa verið mikla áskorun fyrir kennarastéttina að halda utan um þessa hópa. COVID-19 faraldurinn er á niðurleið og segir Ragnar Þór verkefnið framundan að halda vel utan um þennan hóp og tryggja að skaðinn, sem nú þegar er orðinn, verði ekki meiri og unnið verða að því að bæta hann eins og mikið og kostur er. 

„Þetta eru líka tímar þar sem skólafólk hefur upp til hópa sannað gildi sitt og fagmennsku – og sýnt á margan hátt að það var tilbúið í þessa rosalegu stóru áskorun sem var að finna nýja fleti á öllu skólastarfi," segir Ragnar Þór. Við mælum með áhorfi á myndbandið með Ragnari Þór. 


 

Umhyggja fyrir velferð nemenda leiðarstef

Kennarasambandið hefur nú frumsýnt öll myndböndin í heimildamyndaröð um skólastarf og COVID-19. Markmið myndgerðarinnar var að safna heimildum um hina óvenjulegu, og vonandi einstæðu, stöðu sem upp kom í skólum landsins sem og samfélaginu öllu með heimsfaraldri kórónaveirunnar. 

Við hvetjum félagsfólk og alla landsmenn til að horfa á myndböndin enda koma fram margir áhugaverðir punktar er varða skólastarfið, nýjungar og síðast en ekki síst skín umhyggja kennara og stjórnenda fyrir velferð nemenda í gegn. 

Tónlistarskólinn

Aron Örn Óskarsson tónlistarskólakennari



Grunnskólinn

Jón Páll Haraldsson skólastjóri


Sandra Jónasdóttir grunnskólakennari



Leikskólinn 

Gróa Sigurðardóttir leikskólakennari


Ásta Kristín Svavarsdóttir leikskólastjóri



Framhaldsskólinn

Viðar Hrafn Steingrímsson framhaldsskólakennari


Helga Sigríður Þórsdóttir konrektor



Náms- og starfsráðgjöf

Sandra Hlín Guðmundsdóttir náms- og starfsráðgjafi