Skólaárið sambærilegt í leikskólum og grunnskólum

Hafnarfjörður er fyrsta sveitarfélagið sem hefur samræmt starfstíma í leikskólum og grunnskólum. Kennarar í leikskólum bæjarins munu fá jóla-, páska-, sumar- og vetrarfrí með sambærilegum hætti og kennarar í grunnskólum. Þessu fagnar stjórn Félags leikskólakennara.
Skólaárið í leikskólum og grunnskólum Hafnarfjarðar er nú það sambærilegt. Þar með hefur Hafnarfjarðarbær, fyrst sveitarfélaga, stigið það skref að samræma starfstíma í leik- og grunnskólum.
Þessu fagnar stjórn Félags leikskólakennara í ályktun sem var samþykkt í morgun. Í ályktuninni segir að spennandi verði að fylgjast með þróun mála „og hvort þetta skref muni fjölga leikskólakennurum í leikskólum sveitarfélagsins og jafna flæðið á milli skólastiganna".
Þessi breyting var unnin í samvinnu Hafnarfjarðarbæjar, kennara í leikskólum bæjarins og Félags leikskólakennara. Kosið var um fulla styttingu, eða 36 stundir á viku" og var tillagan samþykkt í öllum sautján leikskólum bæjarins. Viðvera verður áfram 40 stundir á viku yfir árið. Alls verða 26 dagar teknir út í svokölluðum betri vínnutíma í leikskólum, um jól, páska, að sumri og í formi vetrarfrís. Skólaárið í leikskólum Hafnarfjarðar er því orðið sambærilegt við skólaárið í grunnskólum bæjarins.
„Markmiðið er að búa til aðlaðandi starfsaðstæður fyrir kennara á leikskólastiginu, fjölga kennurum í leikskólum sveitarfélagsins, auka þar með fagmennsku og bæta gæði náms börnum til heilla," segir í ályktun stjórnar FL.
Ályktun stjórnar Félags leikskólakennara hljóðar svo í heild
Stjórn Félags leikskólakennara fagnar því að Hafnarfjarðarbær hefur nú fyrst allra sveitarfélaga stigið það skref að stilla af starfstíma leik- og grunnskóla í samvinnu við kennara á leikskólastiginu og Félag leikskólakennara. Samþykktu allir 17 leikskólar Hafnarfjarðarbæjar tillögu þess efnis í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Félags leikskólakennara í skólunum og var tillagan samþykkt á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar 15.12.22.
Í leikskólum Hafnarfjarðar var kosið meðal kennara um fulla styttingu eða 36 stundir á viku en viðvera verður áfram 40 stundir á viku yfir árið. 26 dagar á ári eru teknir út í svokölluðum „Betri vinnutíma í leikskólum“ um jól, páska, sumar og í vetrarfríi. Ávinnast þeir með uppsöfnun styttingar vinnuvikunnar og 3 dagar verða veittir til endurmenntunar. Skólaár í leik- og grunnskólum er því orðið sambærilegt hjá Hafnarfjarðarbæ. Betri vinnutími í leikskólum og nýtt skólaár hefur tekið gildi og fyrsta úttekt á „Betri vinnutíma í leikskóladögum“ var núna um jólin 2022.
Markmiðið er að búa til aðlaðandi starfsaðstæður fyrir kennara á leikskólastiginu, fjölga kennurum í leikskólum sveitarfélagsins, auka þar með fagmennsku og bæta gæði náms börnum til heilla.
Það verður spennandi að fylgjast með þróuninni og hvort þetta skref muni fjölga leikskólakennurum í leikskólum sveitarfélagsins og jafna flæðið á milli skólastiganna.
Stjórn Félags leikskólakennara, 12. janúar 2023