Skoðanakönnun Endurmenntunar HÍ

Fréttir|4. maí 2015

Endurmenntun Háskóla Íslands stendur þessa dagana fyrir könnun, en markmið hennar er að mæta áhuga og þörfum þeirra sem sækja námskeið á vegum Endurmenntunar. Hægt er að taka þátt með því að smella hér, og hvetur Kennarasambandið félagsmenn sína til að svara könnuninni. Frestur til að taka þátt er til 7. maí.

Í bréfi sem Endurmenntun hefur sent út af þessu tilefni segir meðal annars:

„Endurmenntun hefur langa og farsæla reynslu af því að halda námskeið á sviðum kennslu, uppeldis og heilbrigðis- og félagsmála. Á hverju misseri eru haldin fjölbreytileg námskeið þar sem ætíð er lögð áhersla á vandað efni sem og góða kennara. Markmið Endurmenntunar er að mæta áhuga og þörfum þeirra sem sækja námskeiðin. Ein leið að því markmiði er að vinna vel úr mati námskeiða hverju sinni en mikilvægast af öllu er að heyra viðhorf og hugmyndir þátttakenda.

Þú gætir unnið gjafabréf
Þeir sem vilja geta tekið þátt í happdrætti eftir að hafa svarað könnuninni. Vinningurinn er gjafabréf frá Endurmenntun að verðmæti 15.000 krónur. Til þess að taka þátt skráir þú netfangið þitt í lok könnunar“.