Skipan fulltrúa FG í nefndir og ráð liggur fyrir

Fjölmargir félagsmenn buðu fram krafta sína, sem er ánægjulegt, og hafði vinnuhópurinn ærinn starfa við að velja fulltrúa úr hópi mjög hæfra félagsmanna.
Listi yfir fulltrúa Félags grunnskólakennara sem taka sæti í stjórnum, nefndum og ráðum á vegum KÍ liggur fyrir. Listinn var staðfestur af stjórn FG, að viðhöfðu samráði við svæðaformenn, í fyrradag en áður hafði þriggja manna vinnuhópur skilað af sér tillögum um skipan fulltrúa í stjórn, nefndir og ráð. Fjölmargir félagsmenn buðu fram krafta sína, sem er ánægjulegt, og hafði vinnuhópurinn ærinn starfa við að velja fulltrúa úr hópi mjög hæfra félagsmanna.
Listinn er svohljóðandi:
VONARSJÓÐUR
- Arna B. Kristmanns aðalmaður
- Rósa Harðardóttir aðalmaður
- Kristín María Birgisdóttir varamaður
- Jónína Hólm varamaður
SJÚKRASJÓÐUR
- Margrét Sigríður Þórisdóttir aðalmaður
- Sigrún Þorbergsdóttir varamaður
ORLOFSSJÓÐUR
- Samúel Örn Erlingsson aðalmaður
- Ólafur Valgeir Guðjónsson varamaður
VINNUDEILUSJÓÐUR
- Hilmar Þór Sigurjónsson aðalmaður
- Jón Ingi Gíslason varamaður
VINNUUMHVERFISNEFND
- Helga Dögg Sverrisdóttir aðalmaður
- Vigdís Klemenzdóttir varamaður
KJÖRSTJÓRN
- Jónína Holm aðalmaður
- Hilmar Þór Sigurjónsson varamaður
FRAMBOÐSNEFND
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir aðalmaður
- Lára Guðrún Agnarsdóttir varamaður
ÚTGÁFURÁÐ
- Daníel Geir Moritz aðalmaður
- Ágúst Tómasson varamaður
JAFNRÉTTISNEFND
- Kolbrún Guðmundsdóttir aðalmaður
- Margrét Þorvaldsdóttir varamaður
SIÐARÁÐ
- Siggerður Ólöf Sigurðardóttir aðalmaður
- Hreiðar Oddsson varamaður
SKOÐUNARMENN REIKNINGA
- Örn Valdimarsson aðalmaður
- Sigurður Sigurðarson varamaður
Þá var eftirfarandi bókað á stjórnarfundi FG: „Stjórn Félags grunnskólakennara þakkar öllum þeim sem buðu fram krafta sína í þágu félagsins heilla um leið og hún þakkar auðsýndan velvilja og hlýhug til stéttarinnar. Enn fremur fær starfshópur sá er fór yfir umsóknir og val á umsækjendum þakkir fyrir óeigingjarnt starf jafnt og svæðaformenn allir fyrir ráðgjöf og stuðning.“