Skilafrestur í hugverkakeppni JAKÍ framlengdur til 8. mars

Fréttir|1. mars 2021

Hugverk eru farin að streyma til JAKÍ en nefndin hvetur kennara allra skólastiga til að aðstoða nemendur við að að skila inn verkum.

Jafnréttisnefnd KÍ (JAKÍ) hefur ákveðið að lengja skilafrest í hugverksamkeppninni til og með 8. mars næstkomandi. Er það gert vegna fjölda áskorana. 

Blásið var til hugverkasamkeppninnar í byrjun árs en markmið keppninnar er að hvetja nemendur og kennara til að kynna sér hugtök jafnréttis, vinna með hugtök og hugmyndir þar að lútandi. Samkeppnin fer fram á öllum skólastigum og hafa nemendur frjálsar hendur við sköpun sinna verka. 

Hugverk eru farin að streyma til JAKÍ en nefndin hvetur kennara allra skólastiga til að aðstoða nemendur við að að skila inn verkum. Kennarar mega skila inn verkum fyrir nemendur en mikilvægt er að með fylgi fullt nafn höfunda, aldur, bekkur og skóli. Hugverkum skal skila á netfangið jaki@ki.is.

Keppnisflokkarnir eru fimm

Samkeppnin fer sem fyrr segir fram á öllum skólastigum og skiptist í eftirfarandi flokka:

  • Leikskólinn
  • Grunnskólinn 1. til 4. bekkur
  • Grunnskólinn 5. til 7. bekkur
  • Grunnskólinn 8. til 10. bekkur
  • Framhaldsskólinn

Nemendur í tónlistarskólum teljast til nemenda á fyrrgreindum skólastigum eftir aldri. Veitt verða verðlaun fyrir bestu verkin í hverjum flokki og fá sigurvegarar spjaldtölvu.