Skert starfsemi skrifstofu dagana 6. til 10. maí
Fréttir|3. maí 2024

Starfsfólk Kennarasambandsins verður í námsferð dagana 6. til 10. maí og verður starfsemin ekki á fullu vélarafli á meðan á ferðinni stendur.
Vakt verður hjá Orlofssjóði og mun starfsfólk sjóðsins lesa tölvupósta og svara fyrirspurnum sem hér segir:
- Mánudagur 6. maí milli kl. 09:00-12:00
- Þriðjudagur 7. maí milli kl. 18:00 og 19:00
- Miðvikudagur 8. maí – milli kl. 18:00-19:00
- Fimmtudagur 9. maí – Uppstigningadagur LOKAÐ
- Föstudagur 10. maí milli kl. 10:00-11:00
Félagsmenn sem dvelja í orlofshúsum eru beðnir að hafa samband við umsjónarmenn ef eitthvað kemur upp á – eða senda tölvupóst á orlof@ki.is.
Félagsmönnum er bent á vef KÍ, www.ki.is, til að afla upplýsinga og senda ábendingu á vefnum ef brýna nauðsyn ber til.
Skrifstofan verður opin með hefðbundnum hætti mánudaginn 13. maí.