Skattframtal 2023 vegna launa 2022

Fréttir|9. mars 2023

Hér eru tilgreind ýmis praktísk atriði varðandi skattframtal 2023 vegna launa ársins 2022.

Búið er að opna fyrir skattframtal einstaklinga 2023. Félagsfólk KÍ þiggur styrki úr endurmenntunarsjóðum og sjúkrasjóði sem þarf að gera grein fyrir á framtalinu. Hér á eftir fara leiðbeiningar um útfyllingu framtalsins hvað þessa þætti varðar.

Endurmenntunarsjóðir

Eftirfarandi leiðbeiningar eiga við um alla endurmenntunarsjóði félaga innan KÍ, þ.e.

  • Vonarsjóður FG og SÍ
  • Vísindasjóð FL og FSL
  • Vísindasjóð FF og FS og
  • Starfsmenntunarsjóð FT

Launamiðar vegna styrkja þessara sjóða eru ekki sendir einstaklingum. Fjárhæðir vegna styrkjanna eru hins vegar forskráðar á skattframtalið:



Frádráttur er hins vegar ekki forskráður. Heimilt er að færa kostnað á móti endurmenntunarstyrkjum og það er gert í reit 149, aðeins neðar í framtalinu:



Smellt er á "Færa frádrátt". Þá birtist þessi gluggi:



Félagi getur flett upp innsendum umsóknagögnum á Mínum síðum hjá KÍ til að sjá hvernig kostnaðurinn skiptist í ferða-, gisti-, námskeiðs- og námsgagnakostnað.

Sé þetta ekki gert reiknast fullur tekjuskattur af styrkjunum í skattauppgjöri ársins.

Sjúkrasjóður

Allir styrkir sjúkrasjóðs, nema dánarbætur KÍ, teljast skatt- og staðgreiðsluskyldar tekjur. Félagsfólk hefur nú þegar greitt skatt af þessum styrkjum. Ekki eru sendir út launamiðar til félagsmanna en fjárhæðin er forskráð á tekjusíðu skattframtals 2023 (v. 2022) undir lið 2.3 „Annað, hvað?“ í reit 96 og á þetta hvort tveggja við um sjúkradagpeninga og aðra styrki sjúkrasjóðs.

Dánarbætur færast undir lið 2.9 „Skattfrjálsar tekjur“ C í reit 73 á framtalinu. (Sjá nánar á sundurliðunarblaði sem fylgir framtali yfir allar forskráðar greiðslur).

Afdregin staðgreiðsla af sjúkradagpeningum og öðrum styrkjum sjúkrasjóðs er forskráð á skattframtalið undir lið 2.10 „Staðgreiðsla af tekjum (öðrum en fjármagnstekjum“) í reit 296.

Þar sem staðgreiðslan var dregin af þarf ekki að bregðast við þessu. Staðgreiðslan var miðuð við 2. skattþrep sem ætti nokkurn veginn að stemma hjá þorra félagsfólks. 

 

Styrkir úr sjúkrasjóði KÍ – Frádráttarbært samkvæmt skattamati RSK

Vert er að benda á leiðbeiningar frá Ríkisskattstjóra vegna frádráttarheimildar á styrkjum vegna Heilsuræktar. Sjá hér.